
Á síðu landlæknisembættisins er talað um bólusetningu gegn leghálskrabbameini.
Í lok árs 2010 samþykkti Alþingi að veita fjármagni til HPV bólusetningar gegn leghálskrabbameini frá og með árinu 2011 sem hluta af barnabólusetningum. Veturinn 2011-2012 verður stúlkum sem fæddar eru 1998 og 1999 (12-13 ára) boðin þessi bólusetning og í framtíðinni verður hún í boði fyrir stúlkur í 7. bekk. Bólusett verður með bóluefninu Cervarix sem er framleitt af og felur full bólusetning í sér þrjár sprautur sem gefnar verða á 6-12 mánaða tímabili. HPV veiran (Human papilloma virus) smitast við kynmök og í flestum tilfellum hverfur veiran úr líkamanum af sjálfu sér, en sumar tegundir hennar geta valdið breytingum í leghálsi og með tímanum leiðir að leghálskrabbameini.
Af hverju er verið að bólusetja stúlkur á svona ungum aldri ?
Það kemur fram á síðu landlæknisembættisins að bólusetningin er ekki full vörn og nauðsynlegt er að stúlkurnar fari reglulega í krabbameinsleit síðar á ævinni. Fullyrt er líka á síðu 6h.is að algengustu aukaverkanir eru roði, þroti og eymsli á stungustað og stundum vægur hiti og að ofnæmisviðbrögð eru sjaldgæf og alvarlegar aukaverkanir eru ekki þekktar.
Skráning aukaverkana við bólusetningum í VAERS KERFIÐ (Bandaríkin) er læknum í sjálfsvald sett og áætlað að aðeins 1-10% af aukaverkunum séu skráðar. Í heild eru aukaverkanirnar 18727 eftir 35 milljónir skammta, þar á meðal 763 varanleg örorka, 103 dánar, 2307 sjúkrahúslegur eftir bólusetningu, 4616 náðu ekki bata og 8926 tilfelli á bráðamóttöku.
Þrátt fyrir að milljónir einstaklinga hafi verið HPV bólusettir, þá segir það ekkert um öryggi bóluefnisins nema að rannsóknir hafi verið gerðar eftir á. Ekkert er athugað með aukaverkanir lengra en 30 dögum eftir bólusetningu. Ekki er vitað heldur um hvernig bóluefnið virki ásamt einhverjum öðrum lyfjum.
Landlæknir vill meina að þetta sé hættulaust þar sem svo margir hafa fengið sprautuna, en hvernig getur hann fullyrt þetta þar sem milljónir einstaklinga hafa ekki sent inn reynslusögu sína eftir bólusetningu. Af hverju hættu Indverjar og spánverjar notkun á HPV bóluefninu eftir að nokkrar stúlkur létust? Hér eru líka sögur nokkra fórnarlamba sem létust vegna HPV bóluefnisins.
Hvað er verið að koma í veg fyrir með bólusetningu?
Þegar búið er að greina HPV sýkingu þá er auðvelt að höndla hana og leiðir sjaldan til krabbameins. HPV sýking er einungis ein af mörgum sýkingum í leghálskrabbameini. Að lágmarki 50% af kynferðislega virkum körlum og konum fá HPV sýkingu á einhverjum tímapunkti í þeirra lífi. Í 90% tilfella læknar einstaklingurinn sig sjálfan innan við 2 árum án frekari afleiðinga. 3976 konur dóu úr leghálskrabbameini árið 2006. HPV bóluefnið dugar að hámarki í 5 til 6 ár samkvæmt framleiðanda. Krabbameinstýpur: 16,18,31,33,35,45,51,56,58,59,68,69,73,82. Pap sýni hefur minnkað líkurnar á leghálskrabbameini um 74% síðustu 40 ár. . Upplýsingar frá sanevax.org. Aukaverkanir frá framleiðanda 7 dögum eftir sprautu.
Rannsóknir benda einnig til þess að HPV veiran ein og sér valdi ekki leghálskrabbameini, heldur þurfi aðrir þættir að koma til, svo sem reykingar, langvarandi notkun á getnaðarvarnarpillum, stóðlífi, lélegt hreinlæti eða lélegt mataræði. Til að koma í veg fyrir leghálskrabbamein þá er gott að ungar konur fái nægt fólasín og B12 vítamín þá dragi þær úr líkum á HPV sýkingum um 74%, en það er mun betri árangur en af Gardasil bóluefninu sem vill meina 70% minnkun.
Samkvæmt opinberum tölfræðigögnum fá 1% af þessum konum leghálskrabbamein þegar þær eru 30 ára eða yngri 9% tilfella eru konur 40 ára og yngri. 73% tilfella eru hjá konum 50 ára og eldri. Hvaða gagn gerir þá bóluefnið ef það virkar bara í 5-6 ár og eingöngu er bólusett 12-13 stelpur?
Hvað er í bóluefninu og hvað kostar það ?
Bóluefnið inniheldur: Tvær týpur af HPV vírusnum(16 og 18), ASO4(ál salt og monophosphoryl vökvi), salt,sodium dihydrogen phosphate dihydrate, vírusagnir frá Trichoplusia ni skordýrinu og vatn. HPV bóluefnið inniheldur mikið magn af taugaskaðandi áli sem er notað sem ónæmisglæðir og það getur skýrt af hverju bóluefnið er svona hættulegt.
Ef kaupa á alla 3 skammtana af bóluefninu út í búð kostar það 75 þúsund, en ríkið ætlar að vera svo gott að hafa þetta frítt. Þorsteinn Sch Thorsteinsson er búinn að reyna að fá upplýsingar um það hvað þetta kostar en kostnaður við bólusetninguna er á huldu þar sem stjórnvöld vilja ekki gefa upp kaupsamninginn við GlaxoSmithKline út af mikilvægra fjárhags- og viðskiptahagsmuna samningsaðila ráðaneytisins, þetta á við um svínaflensusprautuna og HPV sprautuna.