Smiley face

Posts Tagged ‘einokun’

Íslensk einokun

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Innlendar fréttir

20% verðlækkun á íslenskum þorski erlendis skilar sér ekki hingað til lands. Þvert á móti greiða neytendur nú hærra verð en fyrir ári.  Íslenski almenningsbúfénaðurinn er látinn bæta tekjutap erlendis.

Landsnet ætlar að hækka verð á flutningi raforku, um níu prósent til almennings og 20 prósent til stórnotenda en hækkunin kemur að mestu niður á almenningi vegna núgildandi raforkusamninga við stóriðjuna.

Almenningsbúfénaðurinn gleymdi að semja um fast verð með engum aukakostnaði við sitt eigið raforkufyrirtæki.  Sofandaháttur neytenda gefur fyrirtækinu svo kost á að snúa við borðinu, nú er almenningur búfénaður félagsins og bætir því upp laka samninga við stóriðjuna.

Bitnar mest á fólki á köldum svæðum

Bændablaðið segir frá því að ef íslendingar leyfa Landsvirkjun og kvislingunum að skuldbinda okkur um stórfé til að byggja rándýra sælínu fyrir raforkusölu til Bretlands, þá megum við búast við fjórföldun á raforkuverði til heimilanna. 

Kominn tími á að hætta sofandahættinum og segja NEI við ruglinu og búfjárvæðingu almennings.

http://bondi.is/lisalib/getfile.aspx?itemid=6429

DIPLOMATIC IMMUNITY!

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Pistlar

Hver man ekki eftir atriðinu í síðasta hluta Leathal Weapon 2, þegar suður-afríski rasistadólgurinn sem leikinn var af Joss Acland reyndi að drepa tvíeykið, en þegar skotin kláruðust án þess að það tækist, þá dró hann upp dipómatapassann og krafðist með eitraðri röddu diplómatískrar friðhelgi.

Rifjum það upp.

Revoked!

Í Leathal Weapon 2, þá fellir Danny Glover þessa friðhelgi úr gildi á staðnum og skýtur illmennið í hausinn.

Lögreglan virðist halda að Bilderberg fundargestir njóti þessarar friðhelgi og geti því brotið bandarísk lög og alþjóðalög að vild, meðan mótmælendur þurfa að feta mjóa línu svo þeir séu ekki sektaðir eða jafnvel handteknir fyrir að vera ekki á gangstétt, eða annað sem undir venjulegum kringumstæðum væri ekki sett út á.

Í þessu myndbandi hér að neðan frá því í gær, þá frelsar Alex Jóns mótmælendur frá fasískum vinnureglum lögreglunnar, sem hafa bannað mótmælendum að ganga yfir götuna þar sem þeir standa sitthvoru megin við innkeyrsluna að hótelinu þar sem fundurinn var haldinn.  Til að komast yfir götuna er þeim gert að ganga óraleið til baka og fara þar yfir gangbraut, ganga svo hinum megin við götuna til baka og framhjá til að komast svo á gangbraut aftur yfir á sama vegarhelming og þeir voru upphaflega á, hinum megin við afleggjarann.

Eftir að hafa rætt málið við lögreglu í ótrúlega stuttan tíma, þá frelsar Alex mótmælendurna frá þessum reglum sem ekki þjóna öðrum tilgangi en að láta þá hlýða einhverjum bullreglum.

Alex gantast með þetta nýja “frelsi” sem mótmælendur hafa áunnið sér, frelsið til að fara yfir götuna.

Rétt um 6. mínútu í myndbandinu hér að neðan fréttir Alex af því hvernig lögreglan, sú sama sem lét mótmælendur labba óraleið fram og til baka svo þeir gætu gengið “löglega” yfir á gangbraut, þessi lögregla horfði aðgerðalaus á þegar Bilderberg glæsivagnarnir keyrðu hiklaust yfir á rauðu ljósi eftir að þeir skrönsuðu framhjá bauli mótmælenda, sem sendu þeim bestu óskir um dvöl í hinu neðra.

Í framhaldi tekur Alex smá fyrirlestur um diplómatíska friðhelgi og hversu óréttlátt er að lögunum sé beitt af ýtrasta þunga á suma, meðan aðrir eru ekki snertir.

Í upphafi var það bara lóð sendiráðsins sem naut friðhelgi.  En fyrir um 60 árum hófu alþjóðasinnar með Rockefeller fremstan í flokki að þrýsta á víðari skilgreiningu þessarar friðhelgi.  Þá fór diplómatapósturinn að teljast friðhelgur, bílarnir þeirra og svo fólkið sjálft.

Handhafar diplómatapassa hafa verið gripnir (og sleppt) með kynlífsþræla, í viðskiptum með eiturlyf, að aka yfir fólk og stinga af og allt er þetta látið viðgangast.

Friðhelgi frá sköttum

Þessi tvískipting í þræla og lénsherra er ekki bundin við sendiráðsstarfsfólk eitt lengur, heldur njóta erindrekar alþjóðafyrirtækja oft þessarar sömu friðhelgi, ýmist með diplómatavegabréfum, eða með sérstökum samningum, eins og við þekkjum vel hér á Íslandi, þar sem álrisar og kínverskir ferðamálafrömuðir semja fyrirfram við stjórnvöld um að þeir séu undanþegnir sköttum sem lagðir eru á önnur fyrirtæki eða almenning, þeir semja um niðurfellingu á hinum og þessum gjöldum og niðurstaðan er sú, að þeir njóta einokunaraðstöðu, því smáir samkeppnisaðilar eru skattlagðir og gjaldaðir niður í svaðið áður en þeir ná fótfestu.

Það sem skrifað er um í þessum pistli gerist á fyrstu 10 mínútunum í eftirfarandi myndbandi.

 

akur.pd.Petr.Kratochvil

Matarslagur – erfðabreytt ‘hugverk’ í eigu stórfyrirtækja

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Matvæli

Með vaxandi velvild stjórnvalda við málstað þeirra sem telja að hægt sé að stela “hugverkum” og að yfirvöld eigi að koma í veg fyrir slíkt með ritskoðun, forvirku eftirliti og sérsveitum, þá má sjá dögun nýrra tíma þar sem matarbúr heimsins er ‘hugverk’ í eigu stórfyrirtækjanna, og óleyfilegar afætur þarf að uppræta með nazískum aðferðum.

Er hægt að stela einhverju án þess að taka það úr vörslu annars?  Já, segir STEF, RIAA og Hollywood iðnaðurinn, sem þykist tapa fúlgum á hverri mínútu meðan ‘hugverk’ þeirra streyma um skolppípur internetsins inn á tölvur landsmanna.

Höfundarréttur er ekki lengur mestmegnis heiður, heldur alvöru söluvara sem hægt er að selja til stórfyrirtækja eða nota til að drepa nýsköpunarfyrirtæki í dróma málaflutnings fyrir dómstólum og endalausar varnir gegn hrópandi múgi lítilla og stórra eigenda ‘hugverka’.  Það er að segja, ef ACTA, SOPA, PIPA eða aðrir óþverrasáttmálar eða lagabálkar ná fram að ganga.

Ónýtir fjölmiðlar sem klappa fyrir vitleysu dagsins, hvort sem það er ‘íslenska efnahagsundrið’ eða nýjasta spunalumman frá stjórnmálaflokkunum, sjá einnig gróðavon í ruglinu.  Fyrir um tveimur árum hóf mbl.is sókn, birti fyrirvara um “höfundarrétt” og bann við “hotlinkum” á síðu sinni, auk þess að um tíma var ekki hægt að gera “copy / paste” af síðum blaðsins, nema samþykkja einhverja bull skilmála um notkun efnisins.  Erlendir báknmiðlar í sömu hugleiðingum birtu verðlista, þar sem fólki var boðið að afrita efni og greiða fyrir notkun þess, 25 dollara fyrir eina setningu, 50 fyrir málsgrein og nokkur hundruð fyrir eina grein.

Það gæti þýtt að sá fyrsti sem lýsir höfundarrétti á “Tekið á málinu af yfirvegun,” eigi það ‘hugverk’ með húð og hári upp frá þeirri stundu, og ef aðrir nota þessa setningu, þá skuldi þeir 25 dollara til mbl.is!

Hingað til hafa fréttir talist opinberar og í almannaeign.  Kurteisi að vísa í uppruna, en eðli málsins samkvæmt, þá ganga fréttir manna á milli og hafa alltaf gert það.  “Ég sel það ekki dýrara en ég keypti það,” gæti öðlast nýja merkingu, þú getur fengið þessa frétt hjá mér ef þú borgar mér nokkur hundruð dollara!

Víglína baráttunnar um viðurkenningu á höfundarrétti á fréttum hefur færst ögn til baka, sem betur fer, en málfrelsið og sköpunargleðin við að skapa eftirmyndir af Hollywood ræmum á harða disknum sínum eru nánast smámunir miðað við næsta skref í þessari helför.

Það var gríðarlegur sigur fyrir stórfyrirtækin þegar þeim tókst loks að fá genabreytingar og genarannsóknir viðurkenndar sem vernduð hugverk.  Áður var Guð eigandi hugverksins ‘lífs’ og við nutum örlæti hans og kærleika og máttum nota líf okkar, flóru og dýra merkurinnar til þess að blómstra og breyta jörðinni í paradís.  Það er allt að breytast, og breytast hratt.

Nú eiga Monsanto og nokkur önnur stórfyrirtæki réttindin á ‘hugverki’ ýmissa erðabreyttra planta.  Þegar þessar hryllilegu viðbjóðsplöntur menga svo upprunalega lífríkið með copy / paste torrent aðferðum sem við ráðum ekkert við, þá líta dómsstólar svo á að Monsanto og hin stórfyrirtækin eigi þessi nýju hugverk sem hugsanlega vaxa í garðinum þínum, eða á akri sem þú sáðir óerfðabreyttu í, en mengaðist af einhverjum orsökum af erfðabreyttum óþverra.

Þá ert þú að stela frá Monsanto, þeirra hugverki.

 

pelosi.cc.Leader.Nancy.Pelosi

1.800 smáfyrirtæki fengu undanþágu

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Hin nýja heimsmynd

Mynd CC Leader Nancy Pelosi

Nancy Pelosi ver undanþágur sem gefnar hafa verið til 1.800 fyrirtækja frá klafa Obamacare frumvarpsins með því að segja: “Þetta eru lítil fyrirtæki.”  

“Þau eru lítil.  Ég get ekki tjáð mig um öll 1.800 fyrirtækin á listanum, en sum þeirra sem ég hef séð eru mjög, mjög lítil fyrirtæki.  Undanþágurnar munu ekki hafa mikil áhrif á efnahag landsins,” sagði Nancy Pelosi í viðtali við CNBC.

Obamacare kerfið er ekki bara þungur baggi fyrir vinnuveitendur, sem eru skyldaðir til að kaupa heilsutryggingar af ákveðnum tryggingafélögum sem öðlast þá einokunarstöðu, sem gæti virst smá “hnökri” á öllu málinu, óheppileg tilviljun, en er raunar þungamiðjan, enda menn frá þessum sömu fyrirtækjum sem skrifuðu lagabálkinn.

Obamacare er nefnilega líka slappt fyrir tryggingaþega, sem ekki njóta lengur kosta samkeppninnar, þeir geta ekki lengur refsað tryggingafélögum fyrir lélega þjónustu með því að fara annað, því þarna hefur myndast öskjuhlíðarbandalag af beztu sort, þú getur hætt hjá N1, en þá ferðu bara til Olís eða Shell um tíma.  Svo þegar þú verður leiður á þeim, þá kemur þú til baka. 

Þau skipta markaðnum milli sín með stýrðum “tilboðum”, í dag gerum við Fjarðarkaupi tilboð, þá gefur A ‘besta’ tilboðið, en B og C skila inn háum tilboðum sem láta tilboð A líta vel út.  Á morgun gerum við svo Fiskikónginum tilboð, þá skila A og C háum tilboðum, en B fær að gera vinningstilboðið.

Krúnudjásn spillingarinnar er svo til staðar, undanþágur fyrir “rétta” fólkið.  Mikið af þessum 1.800 fyrirtækjum eru væntanlega fyrirtæki stjórnmálaelítunnar í Washington, sem þá getur “keppt” við önnur fyrirtæki og haft góða forgjöf – þau þurfa ekkert að kaupa þessar rándýru nauðatryggingar.

En inn á milli eru svo einkavinavinir kerfisins, fyrirtæki eins og MacDonalds, sem er einn stærsti launagreiðandi landsins með gríðarlegan fjölda af láglaunafólki í vinnu.  Allt þetta fólk getur unnið hjá MacDonalds án þess að hafa nokkra tryggingu, því MacDonalds þarf ekki að kaupa Obamacare tryggingu eins og aðrir.

Svo keppir MacDonalds við ný útibú Ameríkan Style eða Saffran á skökkum samkeppnisgrundvelli.  Launakostnaður þessara “óbreyttu” er miklu hærri en MacDonalds, sem ekki þarf að kaupa tryggingar.

http://www.realclearpolitics.com/video/2011/10/28/pelosi_defends_obamacare_waivers_to_1800_firms_theyre_small_companies.html

Skrípó