Smiley face

Posts Tagged ‘dauðaþjarkar’

A-Reaper-drone-as-used-by-001

Næst eru það karnorkuknúnir dauðaþjarkar

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Stóri bróðir, Stríð

Næsta kynslóð ómannaðra eftirlits- og árásarflugfara verður kjarnorkuknúin.  Það mun lengja flugþol þeirra úr nokkrum klukkustundum yfir í nokkra mánuði. 

Þessar breytingar hafa þónokkra kosti fyrir heimsveldið.  Það þarf ekki að gera þjarkana út úr nágrenni vígvallarins, heldur má senda þá af stað frá vinveittum löndum, jafnvel frá Bandaríkjunum sjálfum og svo sveima þeir mánuðum saman yfir hinum ýmsu eftirlitsvettvöngum.

Þeir geta þá einnig borið meira af vopnum og jafnvel er talað um að vopna þá með kjarnavopnum.

Svo má senda þessa engla út um allar jarðir, við gætum jafnvel haft einn eða tvo sveimandi yfir Íslandi að njósna um okkur, þó það sé enginn beis hér lengur.

Þetta eru sko verkfæri hinna nýju tíma, hinnu nýju harðstjóra sem hafa tekið sér vald til að dæma menn einhliða  sem “óvinveitta vígamenn” og taka þá af lífi, jafnt á stríðssvæðum sem og í vinveittum löndum og jafnvel í Heimalandinu sjálfu.

Mannréttindasamtökin ACLU kvaka mjóróma og segja, “Við viljum ekki þurfa að óttast í hvert sinn sem við stígum út fyrir dyr hvort auga fylgist með hverri okkur hreyfingu af himnum ofan.”

Í kalda stríðinu hafði Ísland þá stefnu gagnvart verndurunum að þeir ættu ekki að vera með kjarnorkuvopn á landinu.  Við höfum einnig þá þrælslegu stefnu að hafa ekkert eftirlit með því að vilji okkar væri virtur.  Svona eftirlitsþjarkar, knúnir af litlum kjarnaofni og ef til vill vopnaðir kjarnavopnum eru engin gleðitíðindi, til dæmis ef þeir hrapa og valda geislamengun í kring um brakið.

http://www.infowars.com/next-phase-of-the-surveillance-state-nuclear-powered-drones/

 

 

630.250.RQ-1_Predator

Drepa með fjarstýringu

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Stríð

Áfram höldum við að vísa í stórstrauminn til að vinna gegn óhróðsherferð Vantrúar gegn Kryppu.  Fréttirnar okkar eru nefnilega stundum sagðar í stórstraumnum, þær fá bara óskup litla athygli og litla vikt.  Útkoman er sú að þær virðast “undantekningar”, eða eins og við köllum það, “tilviljun, óheppni og vanhæfni”.

En þegar þessar fréttir eru sagðar í samhengi og haldið áfram að hamra á þeim, þá fá lesendur leiðréttingu á þeim falska heimi sem hefur verið dregin yfir augu fólks með síbylju og lúmskum heilaþvotti sem er háþróaður og margofinn.

Sumar þessar fréttir eru svo hryllilegar, að í raun ætti allt að stoppa, fólk að þramma niður á þing og krefjast breytinga, krefjast þess að við séum ekki viðriðin þennan viðbjóð, krefjast úrsagnar úr NATÓ.

Við höfum þá mynd af okkur sem Íslendinum, eða höfðnum allavega fyrir skemmstu en það er unnið hörðum höndum að samfélagsbreytingum, að við séum friðsöm þjóð, án hers, stéttlaust þjóðfélag þar sem réttlæti og friður eru grunngildin.

Hvernig getum við þá þolað þátttöku í öðrum eins viðbjóði og lýst er í grein Jóns Bjarka Magnússonar á DV, en samskonar fréttir eru fastir liðir hér á kryppu.

Fjarstýrðar vélar Bandaríkjahers drepa konur og börn

Tuttugu manns voru drepin í árás fjarstýrðrar vélar Bandaríkjahers á hús í Norður Waziristan í Pakistan á mánudag. Að minnsta kosti fjórar konur og þrjú börn voru á meðal þeirra sem létust…

Reuters hefur eftir embættismönnum í Pakistan að tuttugu manns hafi verið drepnir í árásunum, sjö saklausir borgarar og Þrettán „grunaðir uppreisnarmenn.“…

Embættismennirnir segja flesta „hinna grunuðu“ hafa verið Afgana en benda á að óljóst sé hversu miklar sannanir Bandaríkjaher hafi haft fyrir því að um uppreisnarmenn væri að ræða…

Stefna Obama stjórnarinnar hefur undanfarið verið sú að fjölga í herliðinu í Afganistan…

Pakistanska blaðið Daily Dawn sem almennt er álitið hliðhollt Bandaríkjunum hefur fjallað um að árásir fjarstýrðra véla hafi drepið 700 óbreytta borgara í 44 sprengingum síðan Obama tók við árið 2009. Þá segir að í einungis fimm tilvikum af þessum 44 hafi vélarnar náð að hitta skotmörk sín, sem voru að sögn blaðsins fimm leiðtogar talíbana…

http://www.dv.is/frettir/2010/8/25/fjarstyrdar-velar-bandarikjahers-drepa-konur-og-born/

vid.jamaica.l.cc.Joe.Gauder

73 fátæklingar myrtir í Jamaica

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Lögregluríkið

Öryggismiðstöð Heimalandsins (DHS) krafðist þess að gert yrði áhlaup á fátækrahverfi í Jamaica og aðstoðaði við aðgerðina með því að hafa njósnaþjark yfir svæðinu í aðdraganda og á meðan aðgerðinni stóð.

Gawker lýsir þessu svona: “Að áeggjan DEA samþykktu Jamæsk stjórnvöld loks aðgerðina með semingi og gerðu áhlaup á Tívolígarðana, fátækrahverfið í West Kingston sem Christpher Kók ríkti yfir sem hundadagahöfðingi fyrir tveimur árum síðan.  Krissi Kók fannst ekki, en jamæskir lögreglumenn drápu 73 borgara með köldu blóði.  Njósnavél frá Öryggismiðstöð Heimalandsins sveimaði yfir svæðinu allan tímann.”

Glæpagengi Krissa Kók hvarf undireins og lögreglan hóf sína blóðugu leit sem virðist hafa verið framkvæmd með því að ryðjast inn og strádrepa saklausa borgara.

Á meðan fjöldam0rðunum stóð, þá sveimaði njósnaþjarkur bandarísku Öryggismiðstöðvarinnar yfir og sendi morðingjunum upplýsingar í rauntíma.

Eftir blóðbaðið reyndu jamæsk stjórnvöld að hirða allan heiðurinn af hreinsuninni, en Mattathias Scwartz sem skrifar fyrir New Yorker náði að knýja fram upplýsingar með kæru sem vísaði í lög um upplýsingafrelsi, en þau gögn sýna að bandarísk stjórnvöld spiluðu sína rullu og þá drógu jamæsk stjórnvöld til baka fullyrðingar um að þau ættu ein heiðurinn af ódæðinu.

Meiri upplýsingar um þennan viðbjóð má finna í grein Paul Joseph Watsons og þar eru einnig tenglar á Gawker og fleiri heimildir.

En aðalatriðið er eftirfarandi:

NATÓ og bandarísk stjórnvöld eru ekki rétti aðilinn til að ganga fram sem einvherskonar lögregla á heimsvísu, sem veltir stjórnvöldum í hinum og þessum löndum af geðþótta vegna óljósra sögusagna um að þessi stjórnvöld hafi farið illa með borgara sína.

Þessu valdi er nefnilega beitt af geðþótta, það má alltaf finna einhver brot á þegnunum í öllum löndum, meira að segja Íslandi.  Baktjaldamakkararnir hika svo ekki við að hita undir ástandinu, senda inn ögrara, vopna andspyrnu og hryðjuverkamenn í löndunum og kalla þá svo “friðsama mótmælendur” í áróðurspípum sínum (RÚV og félögum).

NATÓ og bandarísk stjórnvöld eru sjálf einhverjir verstu mannréttindaníðingar á jörðinni og þróunin er ekki gæfuleg, eins og sést á nýjustu tilburðum Óbamastjórnarinnar til að lýsa heiminn allan vígvöll, þar sem beita má dauðasveitum, njósna og dauðaþjörkum, leynifangelsum og öðrum viðbjóði sem hingað til hefur aðeins viðgengist á blóðvöllum heimsveldisins, Írak, Afganistan og öðrum álíka ógæfusvæðum.

 

Mynd: Áhyggjulaus ferðamaður við Jamaica, CC Joe Gauder
taserdrone

Fljúgandi teiser-róbótar teknir í notkun

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Lögregluríkið

Nú styttist í að hægt sé að teisa og gasa anarkista og leiðindapésa með sjálfvirkum og fjarstýrðum hætti úr öryggri fjarlægð í brynvarinni stjórnstöð.

Öryggismiðstöð heimalandsins styrkti innkaup Montgomery sýslu í Texas á  stríðsróbótum sem hingað til hafa aðallega verið notaðir í Afganistan, en nú fá borgarar í Bandaríkjunum einnig að njóta þess öryggis sem felst í fljúgandi ómönnuðum njósna og teiserróbótum.  Róbótarnir kosta 500.000 dollara stykkið, en öryggismiðstöðin greiðir helming af þessum kostnaði, enda umhugað að auka öryggistilfinningu í heimalandinu.

Og hvað gefur meiri öryggistilfinningu en að vita af ómönnuðum teisiróbótum sveimandi fyrir ofan, og sjá anarkista og fólk með leiðinlegar stjórnmálaskoðanir í flogaköstum eftir að teiser pílum hefur verið skotið í þá af njósna og teisiróbóta úr 20 metra hæð?

 

http://www.prisonplanet.com/dhs-funded-taser-drone-launched-in-texas.html

640.terminator.skull.cc.L.C.Nöttaasen

Fljúgandi Humwee ekki fyrir fólk

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur KryppaTV, Lögregluríkið, Stríð

Við sögðum nýlega frá því að flugbíllinn væri nú loksins að koma af teikniborðinu og á almennan markað, en um leið var sú athugasemd látin fylgja að þessir fljúgandi Humwee jeppar minntu dálítið á flugróbótana í Terminator bíómyndunum.

Skömmu síðar heyri ég Alex Jóns tala um þessa fljúgandi bíla og hann segir – Þeir eru ekki ætlaðir fyrir menn.  Þeir lenda og út úr þeim stíga dauðaþjarkar – terminatorar, bardagavélmenni.

Við höfum nú þegar fljúgandi Predator dauðaþjarka, ómönnuð njósnaflugför sem geta skotið eldflaugum á “óvinavígamenn”, eða bara brúðkaup og jarðarfarir (eins og oft virðist raunin).  Heimsveldið stefnir á sjálfvirka dauðaþjarka, sem þurfa ekki einu sinni flugmenn við fjarstýringarnar, heldur sé hægt að senda þeim fyrirmæli um hvers konar skotmörk þeir skuli velja sér (lista yfir ‘óvini’, eða bara ‘allir sandnegrar’), þannig losna þeir við alla mannlega yfirsjón, því hversu léleg sem þessi mannhræ eru sem stjórna fjarstýrðum dauðaróbótum eða skjóta á börn úr 1 km fjarlægð úr Apache árásarþyrlum sínum, þá hafa þeir þó þennan mannlega neista í sér, þeir geta mögulega snúist gegn illskunni og þá snúast vopnin í höndum stríðsherrana.

http://www.theregister.co.uk/2007/05/10/the_flying_hk_are_coming_aiee/

http://www.theregister.co.uk/2007/03/08/israeli_mini_terminator/

flying.humvee

Flugbíllinn á markað

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Hin nýja heimsmynd, Stríð

Framtíðin er björt, samkvæmt hergagnamaskínunni Lockheed Martin, sem er með fljúgandi Hummer jeppa í pípunum.

Samkvæmt heimildarmönnum innan DARPA er búist við að fyrstu eintökin af þessu framtíðarfarartæki verði tilbúin fyrir lok næsta árs.

Hér fyrir neðan er svo kynningarmyndband Lockheed Martin á því góða starfi sem hergagnamaskínan gegnir.  Það er ekki annað að sjá en að framtíðin sé dásamleg útópía beint út úr myndum eins og Resident Evil, (minnir flughummerinn ekki dálítið á flugþjarkana úr Terminator myndunum?) og Lockheed Martin og félagar í bandarísku hergagnamaskínunni þá í hlutverki Umbrella Corporation.

Í þessum framtíðarheimi (sem allir þrá) heyra sjúkdómar sögunni til og ríkisstjórnir hafa þau tól sem þær þurfa til að tryggja öryggi borgaranna og siðmenningu sína, með því að beita stríðstólunum á villimennina.  Enda eru hermenn og hernaður í öðruhvoru skoti, milli þess sem við sjáum frábærar mannvitsbrekkur leysa flókin aðkallandi vandamál við að drepa fólk með sjálfvirkum hætti í stríðum.

 

http://www.dailymail.co.uk/sciencetech/article-2054005/The-flying-Humvee-gets-ground-U-S-military-plans-terrain-bullet-proof-warcraft-year.html#ixzz1bzFrlxjY

Skrípó