Smiley face

Posts Tagged ‘auðhringir’

dees-america-1776-1913

Samsærið gegn Gaddafi og Múbarak

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Efnahagsmál, Hin nýja heimsmynd

Er það sjálfsprottin alda frelsis og breytinga sem flæðir yfir arabalöndin í Miðausturlöndum og Norður Afríku, eða var þeim komið af stað sem hluta af hernaðaráætlun um alsherjar breytingar á heimsmyndinni?

Trúir þú á tilviljanir?  Franklín Rósevelt sagði að ekkert gerist í pólitík fyrir tilviljun.  Ef það virðist tilviljun, þá getur þú bókað að það var skipulagt þannig.

In politics, nothing happens by accident. If it happens, you can bet it was planned that way.

Hvað er það sem einkennir arabalöndin, og ekki síður afskipti “okkar” af þeim?  Jú, olían er þeirra helsta tromp, þeirra lifiblóð og í sumum tilfellum, svo sem hjá Írak, þeirra bölvun. 

Lindsey Williams kemur úr heimi olíuiðnaðarins.  Hann var inni á bekk hjá stórum körlum í bandaríska olíuverkinu.  Það voru og eru of miklir hagsmunir í húfi til að láta tilviljanir ráða framvindu mála á þeim bæ.  Lindsey fékk að kíkja á bak við tjöldin, og heldur enn sambandi við innanbúðarmenn, mennina sem vita hvað er að gerast.

Það hefur sannast aftur og aftur í þau sirka þrjú ár sem ég hef fylgst með fréttaþætti Alex Jóns og innslögum Lindsey í þann þátt.  Róttækasta dæmið er frá því í júlí á hrunárinu 2008.  Þá var allt enn slétt á yfirborðinu, olía var í kring um 150 dollara tunnan og Lindsey kemur í útvarpsþátt Alex Jóns, þann 28. júlí 2008, og segir að olíufatið muni hrynja niður í 50 dollara og að Bandaríkin muni upplifa hrikalegt efnahagshrun sem taki mörg ár að jafna sig á.

Lehmenn fóru á hausinn í september og olíufatið var komið niður í 50 dollara í október.

Í gær var Lindsey aftur gestur hjá Alexi Jóns, og ég hef aldrei heyrt hann fara eins hratt yfir upplýsingar og spádóma fyrr.  Hann fer venjulega mjög hægt yfir og byggir gríðarlegt drama í kring um hvern punkt hjá sér, enda er hann jú klerkur og hljómar oft eins og hann sé að upplýsa söfnuðinn.  En nú er honum mikið niðri fyrir, enda eru fréttirnar stórar.

Upphaf olíualdar

Lúkas holan á Spindletop

Lindsey byrjar á þvi að fara yfir sögu olíualdarinnar.  Árið 1901 er fyrsta ameríska gusulindin uppgötvuð í Beumount Texas, olíulindin “Spindletop”.  Hún gaus 60 metra í loft upp.  Stóru olíufélögin, Texaco, Shell, Standard Oil í eigu Rockefeller og Chevron voru stofnuð í framhaldi af uppgötvun þessarar fyrstu gusulindar.

Þá var lagður grunnurinn að byltingarkenndum samfélagsbreytingum á síðustu öld. 

1903 rúllaði fyrsti fjöldaframleiddi Fordinn af færibandinu í Ameríku og skömmu síðar fjöldaframleiddur Mercedes í Þýskalandi.

Efnahagslífið í Ameríku var í mikilli uppsveiflu á þessum tímum, en á sama tíma eru arabar í olíulöndum Miðaustursins lítið annað en samfélög hirðingja á kameldýrum.

Það var svo upp úr 1950 sem arabalöndin tóku að gildna.

Baktjaldadíll Kissingers og Araba

Annar helstu heimildarmanna Lindsey er látinn og hann hét Ken Fromm, og var kenndur við Atlantic Richfield samsteypuna.  Þaðan heyrði Lindsey söguna um þróun olíuvinnslu í arabalöndunum.  Stóru bandarísku olíurisarnir, Texaco, Shell, Standard og Chevron, fengu það hlutverk að þróa olíuvinnslu í hinum ýmsu arabalöndum.  Löndunum var að mestu skipt upp á milli þeirra.  Þau lögðu fram fjármagn til þróunarinnar, en löndin sjálf gátu ekki grafið upp það fé sem þurfti til. 

Ken Fromm fékk það hlutverk á vegum Atlantic Richfield, að þróa olíuvinnslu í Kúveit, Dubai og nágrenni. 

Á tímum Carter stjórnarinnar, kringum 1977-1981, var Henry nokkur Kissinger utanríkisráðherra.  Hann fór á fund allra helstu olíuríkjanna á þeim tíma og reyndi að fá þá til að samþykkja ákveðinn díl.  Það var samkomulag sem hefur markað röð “tilviljana” síðan þá.  Það varð upphafið að skuldsetningu bandarísku þjóðarinnar, sem er ekki til komin vegna óheppni eða tilviljana, heldur úthugsað með forvirkum hætti

Allar þjóðir ÓPEC gengu að samkomulagi Kissingers.  Allar nema tvær.

Þær voru Írak og Íran.

Íran hefur verið lagt í einelti og átt fyrir “tilviljun” í allskyns ólagi síðan það neitaði að staðfesta samkomulag Kissingers.

Bandaríkin hafa safnað sívaxandi skuldum síðan þetta samkomulag var gert.  Einhver varð að kaupa ríkisskuldabréfin, og þar var komin drifkrafturinn að samkomulagi Kissingers.

Samkomulagið var eftifarandi:  Olíuríkin kaupa skuldir Bandaríkjanna, en í staðin kaupa Bandaríkin olíu frá arabaríkjunum, og elítan lofaði að virkja ekki frekari olíulindir í Bandaríkjunum.

Þar er komin skýringin á því af hverju gríðarstórar olíulindir í Alaska (Gull Island) eru ekki virkjaðar.  Lengi vel var tilvist þeirra neitað, síðar talað um ‘viðkvæma náttúru’.  ‘Verndun’ þeirra hefur ekkert með ‘náttúruvernd’ að gera.  Það er hluti af samkomulagi.  Það er einokunarsamkomulag.

Auk þess að virkja ekki nýjar og gríðarstórar lindir, þá var framleiðsla á eldri svæðum tempruð niður og mörgum svæðum lokað.

Endalok Ameríku

Þessi skuldasöfnun var upphafið að hægri hnignun Bandaríkjanna og Norður Ameríku.  Sú áætlun gengur undir því viðfeldna  kenninafni “Messías djöfulsins”. 

Æðisgengin skuldasöfnun Bandaríkjanna tók kipp eftir hrunið þegar stjórnvöld hafa með brjálæðislegum hætti prentað dollara í tveimur aðgerðapökkum (Qantative Easing) og sá þriðji og stærsti á leiðinni, er á góðri leið með að eyðileggja verðgildi dollarans.  Aðgerðapakkarnir hafa að langmestu snúist um að hjálpa fjármálastofnunum til að standa við fáránlega afleiðusamninga, sem með réttu hefðu átt að setja þær á hausinn og þar með núlla út þá samninga.  Í staðinn er skuldin færð á axlir bandarískra skattgreiðenda, með kunnuglegu Icesave plotti, nema Bandaríkjamenn hafa engan kost á að segja nei.

Svikráð elítunnar gegn aröbunum

Risaolíulindir Gull Island voru ekki nýttar og lengi vel mátti alls ekki tala um svæðið ef menn vildu starfa í bransanum.  Ken Fromm sagði Lindsey að þessar lindir yrðu ekki nýttar, fyrr en verð á hráolíu verður einhversstaðar í kring um 200 dollara á tunnu.

200 dollarar á tunnu!  Lindsey telur að þeim punkti verði náð á næstu 9-12 mánuðum. 

Hann segir markmiðið með óróanum í Miðausturlöndum vera það að koma verði á olíu upp í þessar hæðir, að gera olíuna svo dýra að Bandaríkjamenn geti ekki lengur keypt hana. 

Þá verða þessar lindir opnaðar og þar með gengið á bak við samkomulagið frá Kissinger tímanum við OPEC olíuríkin.

Það mun samt ekki koma í veg fyrir hrun dollarans, hann verður orðinn verðlaus í enda 2012.  Þar með fer öll auðlegð Miðausturlanda, því eignir þeirra eru bundnar í bandarískum ríkisskuldabréfum.  Þau verða jafn mikils virði og pappírinn sem þau eru, eða eru ekki (elektrónísk) skrifuð á.

Lindsay segir að það þýði endalok góðærisins í Miðausturlöndum, þau breytast aftur í samfélög hirðingja á kameldýrum.

Kína er á uppleið 

Ef fólk heldur að Miðausturlönd með olíugróðann sinn séu með pálmann í höndunum, þá verða það aldeilis hissa þegar tímar Arabíu-Lawrance á kameldýrum og hreinræktuðum hestum renna upp á nýjan leik.

En Kína situr nú rólegt og bíður.  Kína verður ekki fyrir áhrifum af olíuverðshækkunum, því Kína hefur gert samning við Rússland um að kaupa olíu af þeim og greiða fyrir í Yuan.

Þar hafið þið það, ósmurt.

Lindsey verður gestur Alex aftur í dag, og þá ætla þeir að halda áfram að ræða þessi mál og ef til vill skoða hvort eitthvað sé hægt að gera til að forða falli Bandaríkjanna.

Tengt:

Kína hvetur landsmenn til að kaupa gull

Spár um Messías djöfulsins á áætlun

Svarta gullið sekkur

Viðtalið, fyrsti hluti, annar, þriðji, fjórði, fimmti.

 

800px-BernankeLeavingBilderberg2008

Fjölmiðlar á spenanum

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Efnahagsmál, Fjölmiðlar, Klórað í yfirborðið

 Nú hefur Seðlabanki Bandaríkjanna ehf orðið að gefa upp að einhverjum hluta til, hvert beilát-féið hefur runnið, og þar gætir ýmissa grasa.

Meðal annars kemur í ljós að fjölmiðlasamsteypa í eigu General Electrics fékk gríðarmiklar fúlgur… …og gleymdi að greina frá því í fréttatímum sínum.  Það kemur í ljós, grafið innan um annað efni í þessari grein, en DrudgeReport fréttatenglasíðan lætur ekki gabbast og gerir það að sinni fyrirsögn.

FED SECRETLY BAILED OUT GE -- GE NEWS OUTLETS FAILED TO REVEAL IN FED COVERAGE ...

CC mynd Shepherd Johnson
- Bernanke yfirgefur Bilderbergfund

52% atvinnuleysi hjá ungu fólki

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Efnahagsmál, Hin nýja heimsmynd

Gull ríkur upp á sama tíma og seðlabanki Bandaríkjanna í samvinnu við stjórnmálaelítuna býr sig undir að gefa út enn meiri skuldir á skattgreiðendur.

Gull hefur hækkað um næstum 16% á þessu ári.  Það hefur hækkað með svipuðum hraða í tíu ár samfleytt, án þess að mikið sé talað um það.

Stjórnvöld stefna á að fá samþykki fyrir að pumpa út 643 milljörðum dollara í aðgerðapökkum, milli 5. nóvember og fyrir enda þingsins.  Það á að gera á sama tíma og atvinnuleysi mælist 52,4% meðal ungs fólks á aldrinum 16 til 24 ára.  Þetta er hópurinn sem fer í stríð, nú eða gerir byltingar.

Korpórötin, sem fá nú skattaafslátt upp á 300 milljarða dollara, skila methagnaði og sitja á peningafjalli upp á 1,5 bandarískar trilljónir í reiðufé.  Þessir sömu auðhringir halda áfram að bæta hag sinn með fleiri og fleiri uppsögnum.

Þetta eru merki hinnar nýju heimsmyndar, þar sem auðhringirnir og foringjar þeirra verða lénsherrar í nýrri 5 / 95 skiptingu auðsins.  Nýja kerfið er sama og gamla kerfið, ríkur aðall í allsnægtum sem heldur sárafátækum almenningi í skefjum með föntum og eftirlitsþjóðfélagi.

http://www.infowars.com/fed-issues-more-debt-as-gold-rises/

Mynd CC Renee Silverman

Dóttir okkar deitar drullusokka

Höfundur Gullvagninn þann . Flokkur Andspyrna

Saga iðnaðarins er ekki ósvipuð mannkynssögunni, enda oft samofin, skrifuð af sigurvegurunum, og algerlega neðanjarðar.  Auðhringir og ríkisstjórnir… eins og Mússólíni sagði, fasisminn er ástríkt hjónaband þessara tveggja aðila.  

Hvernig þekkir þú slíkt samband og kemur í veg fyrir hjónabandið? 

Ef menn streyma fram og til baka milli ríkisstofnanna og auðhringjanna, og ríkisstofnanirnar eru að setja reglurnar fyrir viðskiptalífið, þá veistu að sambandið er orðið full náið.  Þú sem almenningur villt þá taka dóttur þína (ríkið) á eintal og útskýra fyrir henni að kærastarnir (auðhringirnir) séu foreldrunum (almenningi) ekki að skapi, og að þú munir bara vísa henni út (ríkisdóttirin býr enn hjá foreldrum sínum) ef hún haldi áfram að fara á stefnumót við þessa óhefluðu siðblindingja.   

Saga áliðnaðarins er ekki undantekning.  Ríki, kjarnorkuvopnaframleiðendur og álbræðslur (Alcoa framarlega þar á bæ) tóku höndum saman í anda Edwards Berneys við að bókstaflega selja almenningi eiturúrgang sem jákvæð “bætiefni”.  Flúorúrgangur úr álverum er eiturúrgangur, það er ekki hægt að þræta um það.  Flúor úr álveri er ekki sama og flúor í fæðu / náttúrulegu umhverfi, því flúorúrgangurinn er ekki hreint flúor, það er ýmislegt með í pakkanum.  Samt er þessu dömpað beint í vatnsból í Bandaríkjunum.  Flúor er notað sem skordýraeitur, það er einnig vinsælt í efnavopn, og var Alcoa sektað fyrir að flytja flúor út til einhverra óæskilegra landa árið 1999, einmitt vegna þessa eiginleika.

Að auki eru alvarlegar athugasemdir um tilgangsleysi flúors sem tannverndarefni algerlega hunsaðar.  

En flúor er virkt að einu leiti, það gerir fólk heimskara, byggir þoku í heilanum.  Majór Georg R. Jordan í bandaríska flughernum vitnaði fyrir nefnd um ó-ameríska hegðun á 6 áratug síðustu aldar, að í stöðu sinni sem milligöngumaður í samskiptum Bandaríkjanna og Sovétríkjanna, að sovétmenn hafi stoltir viðurkennt að flúorblanda vatn í gúlöggunum sínum til að gera fangana heimska, sinnulausa og undirgefna.

Það var ó-amerísk í þá daga, en fyrir dóttur okkar Ríkið og kærastana hennar Auðhringina, þá eru þetta óskaforeldrar, heimskir, sinnulausir og undirgefnir! 

CC mynd: Cake Girl by Hyeyoung Kim

Skrípó