
Gagnauga virðist í mikilli herferð gegn jaðarfjölmiðlarisanum Alexi Jóns um þessar mundir. Þann 4. des birtist löng grein á ensku sem merkt er einum fastapenna síðunnar og í dag birtist svo tengil á Before It’s News vefsíðuna þar sem margar ágætlega skemmtilegar, en oft rangar fréttir eru birtar.
Kjarninn í þessum boðskap virðist sá að Alex Jóns hafi komið fram á sjónarsviðið á sama tíma og fréttaveitan Stratfor var stofnuð, auk þess sem báðir aðilar reka starfsemi sína frá smábænum Austin í Texas ríki. Þar af leiðir að Alex Jóns er gerður út í samvinnu CIA og zíonista og nú nálgast hápunktur þessa samsæris, sem er að Alex muni særa landa sína út í blóðuga byltingu sem væntanlega mun verða notuð sem réttlæting á virkjun FEMA fangabúðanna og fangelsun milljóna andófsmanna, meðal annars þeirra sem hafa hringt inn í útsendingar Jóns, eða gerst áskrifendur að PrisonPlanet.TV vefsíðu kappans.
Það vantar ekki dramann í þetta plan, áksrifendur PrisonPlanet sendir í Prisonið og meira að segja í FEMA fangabúðirnar, sem fáir hafa vakið meiri athygli á heldur en einmitt Alex Jóns og erfitt að sjá hvernig það þjónar tilgangi CIA og zíonistanna að afhjúpa eigin concentration camps sem hafa risið með eins mikilli leynd og möguleg er með góðri samvinnu stórstraumsmiðlanna, sem eru snillingar í að fjalla ekki um fréttir.
Til að ná þeim óvéfengdu vinsældum sem kappinn á að fagna, þá hefur hann þurft að beita nánast ómennskum tvískinnungi (ætli hann sé eðlumaður?), því hann hefur barist eins og ljón gegn allskyns þöggun og spillingu, auk þess að blása hlustendum í brjóst gamaldags skilningi á frelsi einstaklingsins, frelsi frá sovéti, kapítalískri einokun, auðhringjum, alþjóðasinnum, leyniþjónustum og öðrum óþjóðalýð. Hann hefur náð til hlustenda um allan heim, ekki bara í Bandaríkjunum og hlýtur að vera einn stærsti áhrifavaldur allskyns kryppukarla um allar jarðir, sem hafa öðlast nýja sýn á alþjóðapólitík, sem og pólitík sinna eigin landa. Ég hef heyrt fjölmarga misgóða jaðarfréttamenn nefna Alex Jóns þegar þeir ræða upphaf síns jaðarfréttaferils. Þar á meðal nefni ég James Corbett, einn sá allra vandaðasta fréttamann sem ég þekki til. Hann einn og sér er sönnun þess hve CIA og zíónistarnir eru vitlausir að gera Alex Jóns út í þessi 16 ár.
Svo virðist sem þessu afhjúpun Alex Jóns hafi átt sér stað í grein sem birtist á truther.org í febrúar á þessu ári. Í niðurstöðum þeirrar greinar kemur fram að jaðarfréttaforinginn fari rétt með fréttaefni í 90% tilvika, en hinn gríðarlegi skaði sem hann veldur felist í þeim 10% sem hann ýmist fer rangt með, eða fjallar ekki um.
Humanity, namely America, is waking up. Had a nuke gone off in Texas that Sunday night, riots, martial law, and an armed revolution would have likely ensued. Alex Jones’ job is to make sure that happens.
We are in an information war. While 90% of what Alex Jones says is true, it’s the 10% he is omitting that is going to end up damning America. Exposing the one and only Alex Jones as a potential STRATFOR double agent is paramount and the first step into exposing the truth behind the truth movement.
Ég ætla ekki að útiloka að Alex Jóns tengist einhverjum hópum eða að einhver dagskrá sé að baki þrotlausri vinnu hans, en hann tekur varla frídag og hefur nýlega keypt sér gamlan húsbíl svo hann geti farið í stutt frí með fjölskyldunni, en samt komið fram í daglegum útvarpsþáttum sínum, sem hann hefur stýrt nánast einn í þessi 16 ár.
Það sem fólk á að gera sér grein fyrir er að treysta aldrei einni uppsprettu frétta, heldur hlusta á mismunandi vinkla frá mörgum vönduðum uppsprettum. Það gildir fyrir útvarpsþátt Alex Jóns, en einnig um RÚV, Bylgjuna og meira að segja Gagnauga. Hver einasti fjölmiðill getur verið stolltur af því að státa af 90% réttum fréttaflutningi. Hvað þá þegar það mat kemur frá andstæðingum þeirra.