Svínaflensan krufin

Blekking af þessari stærðargráðu er sjaldséð í mannkynssögunni, segir Michael Werbowski í inngangi að umfjöllun sinni. Var þessi falski heimsfaraldur í alvöru blekkingarherferð á vegum WHO og lyfjaiðnaðarins, eða eru ásakanir frá heilbrigðissérfræðingum eins og Dr. Wolfgang Wodarg bara samsærishjal?

Kíkjum á staðreyndirnar.  Af heildarmannfjölda jarðar upp á 6,8 milljarða hafa einungis 15.613 dauðsdagar verið tengdir H1N1, samkvæmt tölum frá síðasta hluta 2009.  Í samanburði dóu heilar 50 milljónir úr spænsku veikinni, en það var í heimi þar sem heildarmannfjöldi var 1,6 milljarðar, gríðarleg dánartíðni upp á 3% af öllum jarðarbúum.

Orðið faraldur eða ‘pandemic’ á ensku er samsett úr grísku orðunum ‘pan’ sem þýðir allir og ‘demos’ sem þýðir fólk.  Þar af leiðandi var skilgreiningin og skilningurinn á orðinu ‘pandemic’ eða faraldur þannig að veikin þyrfti að hafa áhrif á mikinn meirihluta fólks.  Að auki var skilgreining WHO þannig að dánartíðni þurfti að vera há, ekki var aðeins nóg að veikin væri smitandi.  Því var breytt í aðdraganda svínaflensunnar. 

Lesið alla greinina á ensku: H1N1- Swine Flu: A Post Mortem

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments