Svínaflensa eða svínasúpa?

Fyrir rétt ári síðan gekk íslenska heilbrigðiskerfið fram af hugsandi fólki.  Keypt var gagnlaust bóluefni gegn ímyndaðri hættu fyrir nokkur hundruð milljónir.  Landsmenn voru hvattir til að láta bólusetja sig því annars væri voðinn vís.

Flest fólk með a. m.k. hálfa brauðsneið í kollinum sá fljótlega að svínaflensufárið var gabb.  Dánartíðnin var afar lág út um allan heim og flensan lítið skæðari en árleg inflúensa.  Þessar staðreyndir trufluðu þó ekki Landlækni eða kollega hans sem sér um sótt- og smitsjúkdómavarnir.  Með bros á vor létu þeir ríkissjóð fjárfesta í lítt prófuðum bóluefnum.

Allir voru hvattir til að  bólusetja sig.  Þó ekki alveg strax því bóluefnið var takmarkað.  Löggur, læknar og auðvitað lykilstarfsmenn RUV, en ekki yfirmenn, ásamt áhættuhópum fengu forgang í efnið dýra.  Vandamál í pökkun olli því að ekki barst nóg af bóluefninu til landsins.  Góðu fréttirnar voru að aðrir þjóðir sátu líka í sömu súpunni.

Með þetta í huga er ágætt að rifja upp ummæli höfð eftir starfsmanni WHO(ef ég man rétt) í pallborðsumræðum þegar svínafárið stóð sem hæst.  En þessi ágæta kona sagði að það væri gott ráð að auglýsa skort á bóluefnum til að hreyfa við fólki.  Margir ætluðu alltaf seinna en þeir kæmu ef bóluefnið væri að “klárast”.  Öðrum viðstöddum þótti þetta bara ansi sniðug hugmynd.

Nokkrum vikum seinna þegar bóluefnaherferðin stóð sem hæst tilkynnti útvarp allra landsmanna þau alvarlegu tíðindi að ekki hefði borist pantað magn af bóluefninu. Ástæða, einhver vandamál hjá framleiðenda.

http://www.dailymail.co.uk/news/article-1299495/1-2bn-spent-beat-swine-flu–just-26-lives-saved.html

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments