Sveltu stúlkubarn en önnuðust Anímu

Lörgrela hefur handtekið kóreískt par fyrir að svelta þriggja mánaða gamla dóttur sína til dauða meðan þau fóstruðu sýndarpersónu ungrar stúlku í tölvuleik.

Maðurinn sem er 41 árs og konan, 25 ára, kynntust á netinu.  Þau munu hafa skilið ungabarn sitt eitt heima meðan þau stunduðu internet kaffihús til að spila leikinn.  Þau litu einungis annað slagið við heima til að gefa barninu formúlu að drekka.

“Parið virðist hafa misst viljann til að lifa venjulegu lífi,” sagði Chung Jin-Won, lögregluforingi.

Í september síðastliðinn, eftir 12 klukkustunda leikjalotu, kom parið heim að morgni og fann dóttur sína látna.  Horaður líkami hennar vakti grunsemdir lögreglu um vanrækslu og þær voru svo staðfestar í krufningu.

Parið var heltekið af uppeldi og umhirðu sýndarstúlkunnar Animu í vinsælum netleik, Prius Online.  Leikurinn lætur leikmenn eiga samskipti við Animu og með því hjálpa henni að endurheimta minni sitt, sem hún hefur misst, og hjálpa henni við að öðlast tilfinningar.

Þetta er því miður aukaverkunin af þessari tegund leikja.  Fólk verður heltekið og eyðir miklum tíma í að byggja betri sýndarheim, meðan raunheimurinn grotnar niður í afskiptaleisi.  Auðvitað er þetta par afar ýkt dæmi, en fjölmargir eyða miklum tíma og orku í þessa sýndarheima.  Hefðbundin spil eða leikir eru afþreying sem tekur svo enda.  Einhver vinnur matadorinn eða félagsvistina, eða Red-Alert herkænskuleikinn, og þar með endar hann.  Sýndarheimarnir eru öðruvísi.  Þar fóstrar leikmaðurinn sömu sýndarpersónuna, fyrirtækið eða hvað sem viðfangið er, og því meiri tíma sem eytt er, því ‘betra’ verður leikpeðið. 

Svipað gerist þegar fólk verður heltekið af sýndarheimi íþrótta, þegar fólk tileinkar sýndarheimi íþróttaliða stóran hluta lífs síns, ekki endilega sem iðkendur, heldur sem aðdáendur.  Sjá Íþróttir eru eins og kynlífsdúkka.

http://english.pravda.ru/news/society/06-03-2010/112502-parents-0

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments