Eftir að hafa verið vikum saman á grillinu vegna “Sinkó de mæjó” skilaboða til Arizona, þar sem hann virðist hvetja rómanskt ættaða Bandaríkjamenn til að gera sveðjuuppreisn, þá er leikstjórinn Róbert Rodrigues nú á flótta undan málinu.
Nú segir hann Machete sýnishornið, sem gefið var út á degi hinna dauðu, 5. maí, vera “falsað” og afsakar sig með því að segja það “dæmi um of mikið tekíla.” Þessi átakanlegi og hrokafulli útúrsnúningur hans var birtur á Ain’t it cool news vefsíðunni, sömu síðu og var fyrst til að birta sýnishornið.
Þar segir hann meðal annars að hann hafi alls ekki viljað gera mynd um kynþáttastríð, eða hvetja til slíks. Heldur hafi hann viljað gera eitthvað jafn fáránlegt og lögin í Arizona séu. Því hafi hann klippt saman gamlan trailer sem var í Planet Terror, og ný atriði úr myndinni sem kemur út í haust og sent það þannig út.
Þetta stemmir samt ekki alveg, því handritinu að Machete var lekið til útvarpsmannsins Alex Jones, sem fyrstur birti fréttir af málinu, og þar sést að myndin er í samræmi við sýnishornið, sveðjumynd þar sem kynnt er undir kynþáttafordómum gegn hvítum og fólk af rómönskum ættum hvatt til að grípa til sveðjunnar.
Robert Rodriguez Backpedals on His ‘Message to Arizona’

Comments
Powered by Facebook Comments