
Forseti Írans, Mahmoud Ahmadinejad, hefur lýst því yfir að hann telji að Bandaríkin, studd Ísrael, séu að undirbúa innrás í tvö miðausturlönd á næstu mánuðum undir yfirskini “stríðsins gegn hryðjuverkum”.
Ahmadinejad sagði einnig að árásirnar myndu nýtast sem sálfræðilegt stríð gegn Íran, en ekki er ljóst hvort hann telur Íran verða annað þessara landa sem ráðist verður á, né segir forsetinn hvernig hann hefur komist að þessari niðurstöðu.
“Við höfum nákvæmar fréttir af því að Bandaríkjamenn hafi kortlagt bardagaáætlun en samkvæmt henni munu þeir leitast við að reka sálfræðilegt stríð gegn Íran,” sagði forsetinn í viðtali við ríkisútvarp Íran, Press TV.
“Þeir ætla að ráðast á að minnsta kosti tvö lönd á svæðinu á næstu þrem mánuðum,” bætti hann við.
Þó Ahmadinejad nefndi ekki hvaða tvö lönd væru í sigti Bandaríkjamanna, þá má gera ráð fyrir að það séu Sýrland og Líbanon, sem bæði eru bandamenn Íran og hafa bæði þurft að þola árásir Ísrael, í skjóli Bandaríkjanna á síðustu árum.
Hann sagði Bandaríkin hafa tvö aðalmarkmið:
Í fyrsta lagi vilja þeir tefja framfarir og þróun í Íran, en að auki vilja þeir styrkja stjórn síonista sem á í vök að verjast og síonistarnir telja að þeir geti náð sér aftur á flot með herbrölti.
Yfirlýsingar forsetans koma í kjölfar tilkynningar um frekari efnahagsþvinganir gegn landinu af hálfu ESB, Bandaríkjanna og Sameinuðu þjóðanna.
Um helgina lýsti fyrrum foringi CIA, Michael Hayden hershöfðingi því yfir að árás á Íran væri “ósveigjanleg”.
Árás á Íran yfirvofandi, segir Íslandsvinurinn Webster Tarpley
Ahmadinejad: US Expansion Of War In Middle East Imminent

rosalega eru bandarikin god ad passa upp a okkur og vernda okkur fra kolbrjaudum skeggjudum hrydjuverkakollum! svo vita their lika hvad er best fyrir okkur =p bara ad their gaetu einhvern vegin nad ad solsa undir sig allan heimin! Tha yrdi folk svo oruggt %)
Svá góðr
1