
Hver sem sannleikurinn er í máli nuddkonunnar gegn Al Gore, sem nú hefur verið tekið aftur á dagskrá hjá lögreglunni, þá er þetta allt hið besta skemmtiefni.
Alex Jones leiðist ekki að gera grín að málinu. Hann skýrir vitnisburð nuddkonunnar þannig:
Ég er ekkert að reyna við þig, segir Al Gore, með dæmigerðri tvímælgi stjórnmálamanna, um leið og hann grípur um konuna afganverða og humpar hana með liminn stífann innan við flaksandi sloppinn. Skoðið þetta atriði, það hefst á 0:47 í myndbandinu, gullið grín.
Al Gore neitar öllu með illskiljanlegum lögfræðifrösum, en það gerði einnig félagi hans, Bill Clinton, í svipuðu máli. Og hann var sannfærandi, þegar hann horfði framan í myndavélarnar með heilagri vandlætingu og sagði, ég átti engin mök við þessa konu, hvernig dirfist þið?
Það var ekki fyrr en Mónika dró fram sæðissubbaðan kjól sem kom í ljós að Clinton lagði annan skilning í mök heldur en almenningur, enda er hann jú stjórnmálamaður, og þeir kunna listina að láta öll orð þýða eitthvað annað heldur en þau þýða fyrir okkur hinum. Síðan komu þær í röðum, allskyns konur sem Clinton hafði sigrað, hann ku hafa fundist gott að bíta í andlit þeirra til að halda þeim kyrrum meðan hann kom fram vilja sínum.
En þessi nuddkona mun einnig hafa í fórum sínum sæðissubbaða flík, eftir að Gore, að hennar sögn, elti hana með flaksandi slopp og gerðist ögn of æstur á veiðunum.
Í myndbandinu hér að neðan er einnig hljóðupptaka, hluti af vitnisburði konunnar. Þar má heyra að þó Alex Jones setji málið upp í svolítið leikrænan búning, þá heldur hann sig algerlega við handritið.
Comments
Powered by Facebook Comments