
Síðasta laugardag, 21.8.2010, fékk Ian Punnett, einn af stjórnendum útvarpsþáttarins Coast to Coast AM þá Richard Gage frá Sannleiksnefnd arkitekta og verkfræðinga um 11. september og Dave Thomas eðlisfræðing frá Vantrúarsamtökum Nýja Mexíkófylkis til að rökræða atburðina 11. september 2001.
Allur þátturinn, heilir 4 tímar, voru teknir í að kryfja málið. Á þriðja tímanum voru eðlisfræðingurinn Kim Johnson og efnafræðingurinn Niels Harrit fengnir til að leggja enn frekari sérfræðiþunga í umræðuna.
Þátturinn Coast to Coast AM er sendur út á yfir 500 stöðvum um öll Bandaríkin, auk Kanada, Mexíkó og eyjuni Guam og hlustendur eru nærri 3 milljónir að meðaltali á viku. Þátturinn skartar stjórnendunum George Noory, George Knapp og Ian Punnett og er sá þáttur sem mesta hlustun hefur í Norður-Ameríku.
Upptaka þáttarins er aðgengileg hér fyrir neðan, en upptakan er í 11 bútum.
Part 1/11: http://www.youtube.com/watch?v=zzdSbjTEFcs
Part 2/11: http://www.youtube.com/watch?v=A6h5sQqN_x8
Part 3/11: http://www.youtube.com/watch?v=6nbSXp-Hr6U
Part 4/11: http://www.youtube.com/watch?v=UePiVEiNy4k
Part 5/11: http://www.youtube.com/watch?v=fOXpKnC-Kxs
Part 6/11: http://www.youtube.com/watch?v=V93lg0P35QE
Part 7/11: http://www.youtube.com/watch?v=FFKHxvePQsI
Part 8/11: http://www.youtube.com/watch?v=PSbb_nZuQdk
Part 9/11: http://www.youtube.com/watch?v=YYaNqM9EQ2E
Part 10/11: http://www.youtube.com/watch?v=nv2E0BNoGIs
Part 11/11: http://www.youtube.com/watch?v=06Tj7o2eAD8

Þetta er þá ekkert skamm hjá Hafþóri heldur deiling frekar en samlagning á ritstjórn Kryppunnar.
Svá góðr
1
“Er Hafþór að skammast út í málfar og orðanotkun eða efnistök?”
Ég er ekki að skammast út í eitt eða neitt. Ég er bara að dunda mér við að benda á ákveðna tvöfeldni, ekkert annað.
Svá góðr
0
Ég skil nú ekki alveg þessa umræðu. Er Hafþór að skammast út í málfar og orðanotkun eða efnistök?
Svá góðr
0
“Er ekki alveg ljóst að Gullvagninn er að benda á muninn á alvöru ’sérfræðingum’ og vísindamönnum”
Nei, en það er hinsvegar ljóst að hann gerir lítið úr sérfræðingum sem hann er ósammála en notar þá sem hann er sammála sem yfirvald í umræðunni.
Svá góðr
0
Jú Hafþór Örn, það er um að gera að æfa sig í útursnúningum og gera sjálfan sig kjánalegan.
Er ekki alveg ljóst að Gullvagninn er að benda á muninn á alvöru ‘sérfræðingum’ og vísindamönnum og svo hinsvegar einhverju sem við getum kallað “morfís-vísindamönnum”, menn sem hafa engan vísindalegan áhuga á sannleika eða réttu og röngu, bara því sem fóðrar budduna þeirra eða aðra hagsmuni.
Svá góðr
0
“Spámaðurinn” skrifaði þetta varðandi sérfræðinga til að gera lítið úr mér, ég áskil mér rétt til að bauna því á hann til baka þegar hann vitnar í hina og þessa sérfræðinga.
Þegar menn tala um að orðið sérfræðingur sé ekki endilega jákvætt orð, en vitna sí og æ í sérfræðinga, þá mega þeir eiga von á að einhver komi og bendi á þetta misræmi. Ekki satt?
Svá góðr
0
Mjög áhugavert, en þú, Hafþór Örn, virðist aðallega hafa áhuga á hártogunum. Meira að segja þegar ekkert hár er til að toga í.
“Hafþór – ’sérfræðingar’ eru ekki endilega jákvætt orð í mínum huga…”
Það vantar restina af því sem Gullvagninn skrifaði, en jafnvel þó þessi setning sé látin standa ein, þá stendur eftir möguleikinn á því að sumir sérfræðingar séu jákvæðir, ekki satt?
Hér er svo restin, fyrst þú ert að vitna í orð spámannsins, skrifuð beint til þín:
——————————
Hafþór – ’sérfræðingar’ eru ekki endilega jákvætt orð í mínum huga, sjáðu til dæmis lykilorðið ‘falsvísindi’, ef þú vilt skilja hvað ég meina, t.d. http://kryppa.com/jatar-folsun-a-tugum-lyfjarannsokna/
Það er ekki þar með sagt að allir ’sérfræðingar’ séu slæmir, en ég lít á þá fremur eins og presta, þegar kirkjan var á hátindi áhrifa sinna.
Ef þú ert hér raunverulega til að víkka sjóndeildarhringinn þinn, en ekki bara að ‘kristna’ okkur villimennina, þá gætir þú reynt að skýra hvernig bygging 7 hrundi, þegar engar flugvélar lentu á henni, né varð hún fyrir meiri skemmdum en aðrar byggingar í nágrenni tvíburaturnanna, og litlir eldar loguðu í henni. Auk þess var hún sérstaklega styrkt, vegna þess að hún var miðstöð almannavarna í borginni.
Svá góðr
0
Áhugavert, þarna vísar þú í nokkra sérfræðinga augljóslega.
“Hafþór – ’sérfræðingar’ eru ekki endilega jákvætt orð í mínum huga…”
Svá góðr
0