Sprengdu grunsamlega peningagjöf

Svona erum við nú orðin tortryggin í skugga atburðanna 11. september 2001.

Pappakassi sem skilin var eftir við kirkju nærri Maríuvatni olli því að götum var lokað á meðan sprengjusérsveitin gegnumlýsti kassann og sprengdi hann svo í loft upp í kjölfarið.

Skilaboð á 20 kílóa kassanum sögðu einfaldlega “Handa séra Nick.”  Í gamladaga hefði einhver tekið kassann inn og opnað hann.

En sóknarbarn sem fann pakkann við dyr kirkjunnar þótti pappakassinn, sem límdur var aftur með röralímbandi, vera grunsamlegur.  Hann ók pakkanum á næstu slökkvistöð til athugunar.

Þar breyttust svo um það bil 2.500 dollarar í áramótaskraut, en silfurpeningar sem einnig voru í kassanum, sluppu óskemmdir, þó kannski hafi þeir fengið á sig einhverjar skrámur.

Öryggisyfirvöld hafa bara eitt við þetta að athuga, sóknarbarnið hefði bara átt að tilkynna pakkann, ekki aka honum um allan bæ.

‘Suspicious’ package turns out to be donation for Seminole County church

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments