Sovétþegn segir ESB vera algjört plat

Vladimir Bukovsky er 68 ára fyrrum Sovétþegn.  Á sínum yngri árum tók hann þátt í andófi gegn stjórnvöldum.  Fyrir það útveguðu stjórnvöld honum fyrsta flokks dvöl á ýsmum virtum geðsjúkrahúsum.  Meðal hans helstu glæpa var að skipuleggja ljóðalestur til stuðnings rithöfundum og fjölföldun bannaðra ritverka.  Árið 1971 tókst Bukovsky að smygla upplýsingum um vistun pólitískra fanga í geðsjúkrahúsum til Vesturlanda.  Vöktu upplýsingarnar mikla athygli og var hann handtekinn í kjölfarið.  Árið 1972 var Bukovsky dæmdur í sjö ára fangelsi fyrir að hafa haft samband við erlenda fjölmiðla og varpa vondu ljósi á sovéska geðheilbrigðiskerfið.

Fyrir tilstuðlan baráttu vestrænna mannréttindasamtaka og þrýsting frá diplómötum var Vladimari sleppt úr haldi 1976.  Sovésk stjórnvöld skipti síðan á honum og kommúnistaleiðtoga frá Chili.  Hann hefur síðan búið í Cambridge í Bretlandi og helgað sig fræðistörfum og baráttunni gegn “rauðu hættunni”, skrifað margar bækur og sérstaklega gagnrýnt það sem hann kallar “vestræna trúgirni”.

Árið 1992 bauð ríkisstjórn Borisar Yeltsín Bukosvky að bera vitni gegn Kommúnistaflokknum.  Sem hann þáði með þökkum og fékk í kjölfarið aðgang að leynilegu skjalasafni Sovétríkjanna.  Með aðstoð fartölvu og skanna afritaði hann mörg mjög merkileg skjöl.  Þó minna yrði úr réttarhöldunum en efni stóðu til þá varpa þessi skjöl m.a. ljósi á samskipti ESB og Sovétríkjanna.

Í ræðu sem Vladimar hélt í Brussel árið 2006 vitnar hann í skjölin og kallar ESB skímsli sem þurfi að stöðva.     Hann segir líka að fyrir 1985 hafi vinstri flokkarnir í Evrópu ásamt ráðamönnum í Sovét verið á móti Evrópuverkefninu.  Hafi séð hugmyndalegan andstæðing í því en eftir valdatöku Tatcher og hennar hörðu hægristefnu hafi hljóðið breyst.  Það var svo sameiginleg ákvörðun vinstri flokkana í Evrópu og Sovétríkjanna að “stela” Evrópuverkefninu og gera það að sínu.  Í staðin fyrir opinn og frjálsan markað yrði bandalagið gert að sambandsríki.

Þó ýmislegt sem fram kemur í ræðunni virðist ekki passa við hvort annað þá segir Vladimar að hugmyndin hafi verið að mýkja Sovétríkin upp og gera Evrópulöndin sósialískari.  En sem betur fer hafi Sovétríkin hrunið og þeirra þáttur í samsærinu gufað upp.  Síðan heldur hann áfram og hefur verulegar áhyggjur af Europol og að ýmsir “hugsanaglæpir” séu refsiverðir  alveg eins og í gamla Sovét.  Gagnrýni á innflytjendastefnu flokkist t.d. undir hatursglæpi í mörgum ríkjum sambandsins o.s.fr.

“Það er búið að vara okkur við.  Meðan er Sambandið að innleiða meira af hugmyndafræði sinni.  Sovétríkin voru ríki sem var keyrt áfram af hugmyndafræði.  Í dag er hugmyndafræði ESB sósíaldemókratísk og pólitísk rétthugsun virðist skipta öllu máli.  Ég mundi fylgjast náið með hvernig pólitísk rétthugsun breiðir úr sér og verður að loki sem kæfir frjálsa hugsun.”

Í lokinn spáir Bukovsky miklum efnahagsþrengingum sem verða vegna skattahækkana og útþennslu gjalda.  ESB muni hrynja eins og Sovétríkin og þá fyrst verði skrattinn laus.

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments