Sóttvarnarlæknir vill sprauta alla.
Í Morgunblaðinu kemur fram að Haraldur Briem, sóttvarnarlæknir, telji að inflúensan í ár verði ekki mjög skæð. Það sé þó fyllsta ástæða fyrir alla kalla og kellingar að láta bólusetja sig. Aðeins 20% landsmanna láta bólusetja sig gegn inflúensu. “Við viljum sjá talsvert hærri tölur. Það virðist vera að fólk átti sig ekki nógu vel á því hvað þetta getur skipt miklu máli.”
Í annari frétt sem birtist fyrir stuttu í fjölmiðlum kom fram að búið sé að setja bóluefni gegn svínaflensunni saman við þetta gamla góða. 99% vörn gegn öllum geimveirum og sjúkdómum ef eitthvað er að marka Harald Briem. Samt veikjast margir sem fá þessar sprautur í rassinn af flensu.
Nú get ég bara talað fyrir sjálfan mig. En ég hef aldrei fengið flensusprautu og hef aldrei fengið flensu a.m.k. ekki alvarlega. Samt vill sóttvarnarlæknir Íslands að ég láti bólusetja mig! Er þessi maður bilaður eða alveg snarbilaður.
Jane Burgermeister, öflug talskona gegn svínasprautum og fljúgandi svínum, heldur því fram á heimasíðu sinni að læknar í Þýskalandi séu ekki eins æstir að sprauta fólk og Haraldur Briem. T.d. hafi Dr Luise Stolz gagnrýnt lyfjafyrirtækin og stjórnmálamenn fyrir að blanda saman svínasprautunni og þessu gamla góða.
Stolz vill meina að þetta sé gert til að stóru lyfjafyrirtækin þurfi ekki að henda svínagumsinu í ruslið. Annar læknir sagði í viðtali ekki geta gefið fólki flensusprautu í ár. Það væri beinlínis ósiðlegt og rangt.
Lyklar:Bóluefni, svínaflensa









