Snerti skapabarma bloggara

Hún er heimavinnandi húsmóðir, skrifar matreiðslubækur og flaug til San Antóníó, til að hlaupa hálft maraþon.

Á flugvellinum lenti hún í nýrri og aukinni líkamsleit TSA öryggiseftirlitsins, og gerviheimurinn hrundi í kring um hana, þegar hún áttaði sig á því að ríkið misnotar borgarana.  Hér er hluti frásagnar hennar þýddur, neðst má finna tengil á alla söguna á ensku.  Hér er hún búin að lyfta höndum og stendur gleið á mottu, sem markar hvar fæturnir eiga að vera.

Hún klappaði vinstri handlegg minn, hægri handlegg, efri hluta baksins og svo neðri hluta baksins.  Þá sagði hún: “Ég þarf að smeygja hendinnni inn fyrir buxnastreng þinn og þreifa þar í kring.”

Hún þreifaði umhverfis buxnastrenginn, færði sig aftur fyrir mig, og þreifaði þvínæst á báðum rasskinnum mínum.  Hún teygði sig aftan frá miðju rassins í átt að skapasvæðinu.

Þvínæst færði hún sig fram fyrir mig og snerti brjóst mín bæði að ofan og neðan.

Hún hélt áfram að þreifa um mitti mitt.  Þvínæst færði hún sig niður með fótleggjum mínum.

Að neðan þreifaði hún svo innan læra upp í átt að skapasvæðinu, og snerti svo báða skapabarmana.

Eftir þetta var henni sagt að hún mætti fara í skóna og eftir örlítið frekara grams í tösku mátti hún fara.  Þá fór hún að skjálfa og skilja að hún hafði sætt kynferðislegri árás af sínu elskulega ríkisvaldi.  Hún stóð þarna þögul og hlýðin meðan fulltrúinn káfaði um allt, en að lokum áttaði hún sig á því hversu illilega hafði verið brotið á eðlilegum réttindum hennar.

Þessi kona segist vilja nektarskimana frekar en þetta, en það breytir því ekki, að flestir skilja að bæði nektarskimar, þreifingar og allt þetta leikrit á flugvöllum, þar sem allt snýst um að svínbeygja almenning fyrir ríkisvaldinu, er með öllu óásættanlegt. 

Holskefla andúðar og uppreisnar gegn TSA hefur risið, TSA er þegar farið að draga í land, gefa undanþágur fyrir flugmenn og börn undir 12 ára aldri, en sennilega munu þeir ekki ráða við ástandið, því þegar hinn sofandi risi (almenningur) rumskar, þá duga lygar og spuni skammt.

http://www.ourlittlechatterboxes.com/2010/11/tsa-sexual-assault.html

 

TSA káfar á konum og börnum

Öryggisverðir á flugvöllum Bandaríkjanna eru nú farnir að káfa af krafti á konum og börnum sem neita að fara í nektarskimana.

Þeir grípa í brjóst og klof, ekki lengur með handarbaki, eins og þótti kurteisara á tímabili, heldur bara með fingurgómum og lófum. Menn fá jafnvel að grípa í konurnar, ef þeim sýnist svo, og barnaperrar leggja inn umsóknir og fá störf við að strjúka og kreista safaríka barnakroppa. Lesa meira…

Fórnarlömbin streyma fram, eins og í martröð forstöðumanns afvötnunarstöðvar á vegum trúarhóps Þingmenn verja “ástarklapp” TSA

 Fórnarlömbin streyma fram, eins og í martröð forstöðumanns afvötnunarstöðvar á vegum trúarhóps
Lesa meira…

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments