Skyndipróf: Hvers vegna Afganistan?

Það vita allir hvers vegna NATO réðst inn í Afganistan í upphafi.  Viljugu þjóðirnar og allt það.  11. september 2001 voru hryðjuverk framin í Bandaríkjunum og fljótlega varð ljóst að eina vitið var að elta ímyndaða sökudólga í hellum Afganistan.  Eða hvað?

Hið rétta er, að baráttan “gegn hryðjuverkum” var á dagskránni og tilskipanir vegna þeirrar baráttu tilbúnar til undirritunar 4. september 2001, 7 dögum fyrir hryðjuverkin. 

Þessar skipanir voru svo undirritaðar af Búsh, lítið breyttar, 25. október 2001.

http://ftp.fas.org/irp/offdocs/nspd/nspd-9.htm

Þetta kemur fram í vitnisburði Donalds Rumsfeld þann 23. mars 2004, fyrir rannsóknarnefndinni sem ekki mátti rannsaka allt, en var kennd við dagsetninguna örlagaríku.

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments