
Mynd CC Images_of_Money
David Walker, fyrrum forstjóri ríkisendurskoðunar Bandaríkjanna, hefur í kjölfar lögfestingar á hækkun skuldaþaks varað við skyndilegu og mjög sársaukafullu efnahagshruni.
“Við erum innan við þrjú ár frá þeim stað þar sem Grikkland lenti í skuldavandræðum þegar tekið er mið af magni skulda í hlutfalli við landsframleiðslu,” skýrði Walker í viðtali við CNBC í gær, 2. ágúst 2011.
Skuldir Grikklands í hlutfalli af landsframleiðslu höfðu farið fram úr 100% og stefna nú í 150%, en án aðstoðar frá ESB og IMF hefði landið ekki getað staðið við skuldbindingar sínar og því orðið tæknilega gjaldþrota.
Bandaríkin eru nú að nálgast 100% markið en á sama tíma er vöxtur á landsframleiðslu innan við 1% á ári.
Walker vill að stjórnvöld skeri niður útgjöld í stað þess að taka meiri lán og telur Bandaríkin stefna að óumflýjanlegu hruni.
“Við verðum aldrei gjaldþrota, því við getum prentað peninga,” sagði hann.
Að vísu verða þeir ekki prentaðir nema með auknum skuldum – Bandaríkin verða að fá prentuðu peningana lánaða frá einkabankanum “Federal Reserve”, sem svo skapar þá úr lausu lofti.
En Walker bendir á að þó Bandaríkjamenn geti fengið endalaust lánað hjá Seðlabankanum “sínum”, þá hafi þeir ekki friðhelgi frá afleiðingum peningaprentunar. “Vaxtastig er talsverður áhættuþáttur auk gengisskráningar gagnvart öðrum gjaldmiðlum. Það er talsverð hætta á verðbólgu. Ef það gerist, þá verður það mjög sársaukafullt.”

Comments
Powered by Facebook Comments