Ég rétt náði í endann á frumsýning á fyrsta hluta af átta í afar athyglisverðri viðtalsseríu við dóttur Skull’n'Bones manns.
Dóttirin heitir Charlette Thomson Iserbyt og er fyrrum embættismaður í stjórnkerfi Bandaríkjanna sem hefur barist af krafti gegn niðurníðslu menntakerfisins í Bandaríkjunum (og á heimsvísu) og er þar á sama reki og John Taylor Gatto og fleiri góðir sem hafa bent á það hvernig menntakerfið hefur verið “dumbað” niður, menntun hefur vikið fyrir nokkurs konar þjálfun í að gegna og “spila með”.
En í þessari viðtalsseríu er viðfangsefnið saga fjölskyldunnar og Skull’n'Bones leynifélagið sem faðir hennar var meðlimur í.
Missið ekki af restinni af þessari skemmtilegu útsendingu, sem fer fram í opinni og beinni útsendingu á netinu á slóðinni http://infowarsmoneybomb.com/
Hér eru nokkrir molar úr enda viðtalsins við Charlotte:
Faðir Charlotte og afi voru meðlimir í Skull and Bones leynifélaginu við Yale háskólann. Aðeins örfáir nemendur úr hverjum árgangi fá inngöngu í þetta ofur leynifélag, og flestir verða þeir að innstu hjólum bandaríska heimsveldisins. Faðir Charlotte var að hennar sögn dálítið sérstakur að því leiti, að hann var ekki endilega sammála stefnumótun leynifélagsins, hann barðist til að mynda grimmilega fyrir því að stjórnarskráin væri ekki brotin í störfum sínum, en hann var farsæll borgarstjóri nokkurra borga í Bandaríkjunum. Hann hélt þó trúnaði við félaga sína og félagið allt fram á síðustu mánuðina, þegar hann lýsti því yfir við Charlotte, að hann hefði gjarna viljað styðja hana betur í sinni baráttu, sem gengur talsvert á svig við elítisma klúbbfélaganna.
Þegar Thomson pabbi gifti sig, þá fékk hann þessa afaklukku (sem við sjáum efri hlutann af á þessari mynd) að gjöf frá reglunni, en það var (er?) til siðs að reglan gefi meðlimum slíka klukku við þetta tækifæri.

Charlotte á margar góðar minningar tengdar klukkunni, á jólunum beið hún þess að hún slægi 6 högg á jóladagsmorgun, því þá vissi hún að hún mátti fara niður og rannsaka hvort jólasveinninn hefði ekki komið og borðað hnetusmjörssamlokuna sína og svo klukkan hálf sjö mátti hún vekja aðra fjölskyldumeðlimi.
Það var brýnt fyrir fjölskyldumeðlimum að passa að klukkan væri alltaf vel trekkt, hún mátti ekki stöðvast. Hún var líka alltaf stillt fimm mínútum á undan, því reglubræður eru alltaf svolítið á undan öllum hinum.

Charlotte fór lítillega í það hvernig reglan tengdist öllum helstu atburðum á síðustu öld, hvernig félagarnir mótuðu söguna.

Hún veifaði tveimur bókum sem komu í póstinum til föður hennar eftir að hann varð orðinn veikur og hún sá um mál hans. Í þessum bókum eru annarsvegar sögulegur félagalisti reglunnar og svo er hin bókin listi yfir lifandi félaga (á 8. áratug síðustu aldar).
Hún sýndi okkur hvernig faðir hennar var listaður í bókinni og þar mátti jafnvel sjá nafnið hennar í þessari “illu bók” eins og hún kallar það, dóttir Thomsons.
Búsh fjölskyldan var umfangsmikil í þessum bókum, þó George Búsh yngri hefði ekki markað mikla sögu þegar þær voru prentaðar. En Prescott og Bush eldri eru þarna og Búsh yngri og bróðir eru nefndir, enda reglubræður.



Þetta viðtal ásamt hinum hlutunum 7 verða vafalaust tiltæk fyrir áskrifendur Prisonplanet.TV innan skamms.
Bók Charlotte Iserbyt Deliberate Dumbing Down of America er aðgengileg í ókeypis PDF skrá:
Downloadable Original PDF Version

Comments
Powered by Facebook Comments