Smiley face
eurozone

Skuldatryggingaálag Spánar tvöfalt hærra en Íslands

Höfundur bjorn þann . Flokkur Efnahagsmál

Ekkert Icesave og enginn Jón Bjarnason en samt er allt í steik hjá Spáni.  Þeir eru ekki sinu sinni með íslensku krónuna!  Heldur hina dásamlegu evru sem öllu reddar fyrir ríkin sem nota hana.  Stöðugleiki, lágt verðlag og góð laun ásamt mikilli atvinnu.  Það er því eftir miklu að slæðast fyrir Ísland að taka upp evruna.

Töluverður skjálfti ríkir á fjármálamörkuðum í Evrópu þar sem að vextir á spænskum ríkisskuldabréfum til tíu ára fóru yfir 6% markið í gær. Á sama tíma fór skuldatryggingaálag Spánar í 520 punkta og hefur ekki verið hærra í sögunni. Það er nú tvöfalt hærra en skuldatryggingaálag Íslands.

Allra augu munu beinast að útboði Spánverja á skuldabréfum til tveggja ára í dag en alls á að bjóða út bréf fyrir 3 milljarða evra.

Vextir sem eru á bilinu 6 til 7% þykja ósjálfbærir á ríkisskuldabréfum og þegar slíkt gerðist hjá Grikkjum, Írum og Portúgölum þuftu þessar þjóðir að leita á náðir Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.”

Lyklar:, ,

bjorn

Er launamaður og áhugamaður um mat og fjallgöngur niður brekku.

Skrípó