Enn og aftur eru skrípastofnanir eins og Fjármálaeftirlitið að gera úttektir !
Og eru alveg hissa að fá alltaf það sama út . Skrítið þegar notuð eru sömu viðmið, sömu reiknislíkön og sömu upplýsingar. Er bara ekki allt í lagi með þetta fólk.
Björk syngur og kynnir undirskriftarsöfnun gegn Magma
Björk boðar til blaðamannafundar í Norræna húsinu í Reykjavík næstkomandi mánudag, þann 19. júlí, klukkan fjögur. Þar verður fyrirhuguð undirskriftasöfnun kynnt fyrir fjölmiðlum vegna áskorunar um orkuauðlindir Íslendinga. Áskoruninni verður ýtt úr vör með söng en Björk mun flytja nokkur laga sinna í nýrri útgáfu.
Þráinn fær ekki pólsku tillöguna tekna fyrir: „Ég mæti furðulegu áhugleysi“
„Ég fæ hana ekki tekna fyrir,“ segir Þráinn Bertelsson þingmaður en þingsályktunartillaga hans sem gengur út á það að skerða eftirlaun sjömenninganna, sem taldir eru hafa sýnt af sér vanrækslu í starfi í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis, hefur verið lögð fyrir Alþingi.
Er Þráin að dreyma um endurkjör? Þar mætir hann áreiðanlega svipuðu áhugaleysi.
Þingmönnum Vinstri grænna hótað með SMS
Ásmundur Einar Daðason, þingmaður Vinstri grænna, segir í grein í Morgunblaðinu í dag, að þingmönnum og ráðherrum Vinstri grænna hafi verið hótað þegar að atkvæðagreiðsla um aðildarumsókn að ESB fór fram í þinginu.


Comments
Powered by Facebook Comments