Skoðunarferð um eldsneytistjarnirnar

Er kjarnorkuslysinu í Fukushima lokið? Já er það ekki, myndu fréttaþolar RÚV, mbl og stórstraumsins segja. En því fer fjarri, ástandið er enn mjög slæmt og ekki sér fyrir endan á vandræðunum.
Hér að ofan má sjá “snilldarlega” hönnun General Electric á Mark I kjarnaofnunum, en það voru sex stykki í Fukushima og fjölmörg svipuð undur eru svo um allar jarðir. Fyrir ofan kjarnaofninn eru laugar fyrir notað kjarnorkueldsneyti, en það þarf að geyma í kælingu áratugum saman eftir að það er notað áður en hægt er að flytja það í minni gjörgæslu. Ofnarnir í Fukushima höfðu 40 ára birgðir af notuðu eldsneyti í þessum laugum, sem nú er haldið uppi af sundursprungnum burðarvirkjum og gætu hvernær sem er hrunið, eða byrjað að leka svo mikið að ekki sé hægt að halda vatni í laugunum.
Ef þú hefur ekki fylgst með Fukushima málinu, þá er mjög góð samantekt á ástandinu á bloggi Washingtons frá því í dag. Mæli með þessu efni.
A Visual Tour of the Fuel Pools of Fukushima
Lyklar:Fukushima








