
Rannsaka þarf áhrif skjámenningar á mannshugan og ræða á opinberum vettvangi, ekki síður en áhrif veðurfarsbreytinga, segir einn fremsti taugavísindamaður heimsins.
Barónessan Susan Greenfield, prófessor við Oxford háskóla, varar við áhrifum óhóflegrar skjámenningar á tengingar í heila okkar.
Áhrif skjámenningar eru ekki ósvipuð þeim einkennum sem tengd eru við athyglisbrest, svo sem styttri tíma sem fólk getur einbeitt sér og minni samúð.
Við fæðumst með flestar taugafrumur okkar, en vöxtur mannshugarins snýst um að þróa tengingarnar milli þessara fruma.
Prófessorinn færir rök fyrir því að allur sá gori og dýrð sem við upplifum á internetinu, þar sem allur heimurinn er í núinu, með tafarlausum viðbrögðum okkar við öllu því sem leiftrar upp á skjáinn okkar og dynur í eyrum okkar, að þessi upplifun kunni að þróa taugaleiðir okkar í átt að styttri einbeitingartíma og skammtímamarkmiðum.
Ég segi ekki að þetta ógni lífi okkar á jörðu, en það getur svo sannarlega breytt samfélaginu og lífi okkar í því, segir barónessan að lokum.
CC mynd: Susan Greenfield eftir Andy Miah
Comments
Powered by Facebook Comments