Skipt um stjórn með flugslysi

Mynd CC Tomasz Piwowarek Pólverjar safnast saman við minnismerki um Katyn fjöldamorðin í Toranto Kanada, 10. apríl 2010, nokkrum tímum eftir flugslysið
Pólland hafnar niðurstöðum Rússa úr rannsókn á flugslysi þar sem forseti landsins lét lífið.
Pólland hefur hafnað rannsóknarskýrslu frá Moskvu um flugslys sem tók líf nítíu og sex manns, þar á meðal forseta landsins. Slysið átti sér stað í suðvesturhluta Rússlands í apríl síðastliðinn. Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, hefur gagnrýnt niðurstöðurnar og lýst þeim sem rakalausum og óásættanlegum.
Kryppan sagði frá þessu á sínum tíma, ásamt myndbandi frá hópi manna, ef til vill á veiðum, sem kemur að flugslysinu, með myndavél í gangi, og sér í fjarska hvernig hermenn ganga um og senda þá yfir móðuna miklu, sem með lífsmarki eru.
Þetta myndband er nú aðgengilegt með enskum texta, ásamt því að hlutar af því hafa verið stækkaðir upp og greindir betur.
Það er erfitt að vita nákvæmlega hvað hér gerðist, en eitt er víst, að það eru ekki bara stjórnir Bandaríkjanna eða Bretlands sem eru illar og undirförular. Allar ríkisstjórnir leitast við að auka vald sitt og véla fólkið. Til að vel megi vera, þá þurfa þessi embætti að hafa mjög takmarkað vald, og engan rétt á “trúnaði”, það er að segja, ekkert á að vera “trúnaðarmál”, eða “verndað” frá augum fólksins. Stjórnvöld starfa í umboði fólksins, fólkið á ekki líf sín í umboði stjórnvalda.
Flugslysið átti sér stað á 70 ára afmæli Katyn fjöldamorðanna, en þá höfðu Sovétmenn og Nazistar gert með sér dálítið samkomulag, og Nazistar létu það afskiptalaust þegar rússar myrtu 22.000 pólska embættismenn, menntamenn, landeigendur og leiðtoga í pólsku samfélagi.
Ætli Rússar hafi fengið grænt ljós á þessi nýju Katyn fjöldamorð frá nýjum leiksoppum (NATO) sömu aðila og stýrðu Nazistum?
Nánar: http://www.infowars.com/poland-rejects-russias-findings-over-plane-crash-that-killed-president/
Kryppan skrifar um málið:
Flugslys pólsku vélarinnar hryðjuverk?
Kaczynski var til vandræða innan ESB
Meðspilari í stað Kaczynski?
Lyklar:Pólland








