Skipað að fara en mátti það ekki

Skrípaleikurinn hjá TSA heldur áfram, hér er saga ferðalangs sem neitaði nektarskima og þverneitaði að láta snerta kynfæri sín. 

Hann stóð fastur á sínu, en var ofsóttur af skriffinnum alla leið að útidyrum flugstöðvarinnar, vegna þess að eftir að þeir neituðu honum um að fá að fljúga og skipuðu honum að fara, þá kom nýr jakkalakki og heimtaði að hann kæmi til baka og kláraði öryggiskáfið, því hann væri nánast örugglega með íkveikjusprengju einhversstaðar á sér.  Honum var hótað með $10.000 dollara sekt, en hélt haus og bað fulltrúann bara að höfða þá málið gegn sér.

Lesið frásögnina og hlustið á upptöku af atvikinu, þetta er afar fróðlegt og skemmtilegt aflestrar. 

TSA Encounter at San Diego International Airport

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments