Skatturinn vill öll launin!

Breski Skatturinn(HMRC) vill koma í veg fyrir ranga álagningu með nýju álagningakerfi.  Í staðin fyrir að atvinnurekendur borgi launþegum launin sín beint og haldi eftir sköttum þyrfti þeir í nýja kerfinu að senda launin til HMRC sem sæi um greiðslu launa til launþega.  Samkvæmt frétt í The Daily Telegraph þýddi þetta margháttuð vandræði fyrir launþega.  Þeir fengju t.d. ekki venjulegan launaseðil og gætu þar af leiðandi ekki áttað sig á hvaða upphæðir væru dregnar af laununum.

Með þessu verður breska ríkið með puttana í öllum launum landsmanna frá fyrstu mínútu.  Sumir hafa af þessu áhyggjur og telja að ríkið eigi að skipti sér sem minnst af viðskiptum fólks.  Brian Stenhouse sem sér um launagreiðslur fyrir 2000 fyrirtæki hefur miklar áhyggjur.  Hann segir að ef nýja kerfið verði innleitt verði erfiðara fyrir fólk að taka eftir mistökum.  Það verði líka upp á náð og miskunn Skattsins ef það vill fá leiðréttingu.

Þetta minnir mig á góða samsæriskenningu sem ég heyrði.  En hún gekk út á það að ríkið skammtaði öllum peninga, seðlar væru bannaðir og til að versla þyrfti sérstakt leyfi.

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments

Tags: