
Það hefði kannski bara verið betra, ef við hefðum aldrei látið fólk fá internetið, sagði Rockefeller öldungardeildarþingmaður við aðgerðasinna We Are Change, þegar hann var orðinn nógu pirraður á spurningum hans um tengsl Rockefeller fjölskyldunnar við mannbótastefnuna alræmdu, sem Hitler jafnt sem skandinavísk stjórnvöld hömpuðu á fyrri hluta síðustu aldar.
Það er andinn í dag. Internetið, með sitt frjálsa flæði upplýsinga og blómstrandi tjáningu almennings, er tvíeggjað sverð fyrir elítuna. Því var ætlað að safna upplýsingum um mannhafið, nokkurs konar vélvætt Stasi á sterum. Með Facebook, Google og almennri notkun hefur það markmið náðst. Þeir vita nokkurn vegin um alla niðurrifsseggi, eins og okkur Kryppukarla um allan heim. En vandinn er sá að fjöldinn er gríðarlegur, og mannhafið hefur aldrei verið upplýstara um allskyns brögð og baktjaldamakk. Vopnið hefur snúist í höndum þeirra og vinnur nú gegn þeim. Áróður í hefðbundnum fjölmiðlum verður smám saman sljórri, fólk leitar að jaðarfréttasíðum, og ásóknin eykst þegar fólk sér hvernig stórstraumurinn er sífelt að bjaga, spinna og sveigja sannleikann svo hann falli að hagsmunum stjórnvalda og auðhringja.
Þess vegna ágerast sögur um furðulegar aðgerðir, svo sem óþverradíl google og verizon um að forgangsraða internetinu þannig að jaðarsíðurnar verði nánast óaðgengilegar, sögur um að það þurfi að fá ‘útsendingarleyfi’ til að skrifa blogg, eða að það eigi að skattleggja samsæriskenningar (!), tal um ‘mannorðsmorð’ ef einhver segir eitthvað sem særir einhvern, að notendur þurfi ‘ökuskírteini’ á netið, skilríki sem sett eru í lesara tölvu áður en fólk kemst á netið, svo allt sem það gerir sé auðkennt og loggað, og svo framvegis.
Hér er svo enn ein birtingarmyndin á þessari atlögu að hinu frjálsa interneti:

Comments
Powered by Facebook Comments