Skamm DV

DV er sennilega einn besti stórstraumsmiðillinn á Íslandi, en lengi má bæta það sem gott er. 

Svo virðist sem Ritstjórn DV viti ekki að ‘hnattræn hlýnun’ er tómt bull og þýðir því ágrip á áróðursgrein NYT.  Þar segir meðal annars:

Áhrifum hlýnunar jarðar gætir í öfgafullu veðurfari jarðarinnar í dag, segir á vef New York Times. Flóð í Pakistan, skrælandi hitabylgja í Rússlandi og í Bandaríkjunum eru einungis nokkrir af mörgum fyrirboðum.

Flóð í Pakistan

Mogginn, 1956: 

ÞAÐ VAR eitt mollulegt kvöld í októbermánuði síðast liðnum, að Mohammed Ali Khan lá í bóli sínu úti á götu og einblíndi upp í stjörnubjart loftið. Og í öllum kofunum í þessu rykuga þorpi byltu nágrannar hans sér í bólum sínum, voru að hugsa um hitasvækjuna og hvort hann mundi nú ekki fara að rigna.

….

Og Múhammed, sem stóð úti á götu og þakkaði Allah fyrir þessa blessaða rigningu, grunaði síst að innan stundar mundi koma beljandi vatnsflóð niður dalinn og eyðileggja allt, eigi einungis akrana, sem hann helt að nú væri borgið, heldur einnig allt land hans, hsimili og fénað, konur hans og börn — já, mundi ekki heldur þyrma lífi hans.

Hitabylgja í Rússlandi

Svolítið erfitt, því ekkert slæmt gerðist í Sovétinu (Pravda sá um að skrifa frekar um fótboltarassa).  En hvað um hitabylgju í Bandaríkjunum?

Nýja Dagblaðið, 14.7.1936

Hitabylgja

Sjö hundruð manns eru nú dánir í Bandaríkjunum af völdum hitans. Hitinn hefir verið ægilegur undanfarandi um öll Bandaríkin, hvar sem til hefir spurzt, en þó rigndi lítilsháttar í New York. — FÚ.

Þó við höfum átt gott sumar á Íslandi, þá er það engin sönnun “veðurfarsbreytinga”, nema að við skiljum orðið rétt – “veðurfarsbreytingar” eru veðrið.

http://www.dv.is/frettir/2010/8/15/grodurhusaahrif-ofgavedur-framtidarinnar/

Frelsi frá umhverfiskreddunum
Frelsi frá umhverfiskreddunum
Það er mikilvægt að láta kné fylgja kviði og harðneita álögum á fölskum forsemdum.

Banna á útgjöld til veðurfarsbreytinga
Banna á útgjöld til veðurfarsbreytinga
Monckton segir frá fundaferð sinni til Ástralíu og skoðar stöðuna eftir Climategate.

Atburðarás Climategate hneykslisins
Atburðarás Climategate hneykslisins
Kynntu þér Climategate, það gæti borgað sig.

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments