Sjötta skilningarvitið

Tæknin er smám saman að verða meira og meira uppáþrengjandi, smátt og smátt sjáum við hvernig göldróttir þjónar okkar eru í raun einnig fangaverðir og kjaftaskar sem notaðir eru gegn okkur á ýmsa vegu. 

Greiðslukort greina neyslumynstur og spá fyrir um hegðun okkar.  Farsímar staðsetja okkur og símfyrirtæki geyma langar skrár um ferðir okkar sem notaðar eru af sumum stjórnvöldum til að spá fyrir um ferðir okkar með skuggalegri nákvæmni.  Staðsetningarflögur í bifreiðum eru að verða staðalbúnaður og hjálpa sturluðum stjórnvöldum við áætlanir um skattleggningu hvers einasta ekins kílómetra eftir mismunandi gjaldskrám og álagsþáttum.

En þessum hliðum er ekki haldið að okkur, ekki fyrr en nauðsyn krefur, til dæmis innleiðing skattlagningarinnar.  Það sem við fáum í staðinn eru endalausar greinar og upplýsingamolar sem sýna einhverjar jákvæðar hliðar á tækninni, eitthvað verður þægilegra, eða auðveldara og okkur hættir til að láta blekkja okkur til að sjá bara björtu hliðarnar.

Hér er eitt dæmi um fegrun á flögu undir fögru skinni.  Ég þekki hvað er í pípunum og hleyp því nokkur skref áfram, það sem hér er kynnt sem einhver klunnalegur reiðhjólahjálmur með myndavélum, hátalara og handtölvu er bara millistig sem notað er meðan við erum ekki tilbúin að fara alla leið.

Aukin sýn gefur sjötta skilningarvitið

Internetið, GPS og svakaflottan augnaskima mætti sameina til að gera hversdagsupplifun ríkari.

  • Tölvustudd augnaskimun gæti breytt sýn okkar á heiminn
  • Tæknin gæti aðstoðað við að sækja uplýsingar eða auka öryggi
  • Kerfið er svo létt að því væri hægt að koma fyrir í gleraugum

Ímyndaðu þér þetta: Augu þín sjá í fyrsta sinn skýjakljúf í ókunnu borgarumhverfi en göldrótt rödd hvíslar í eyra þér símanúmer á bar fína fólksins sem er á efstu hæðinni.

Eða þetta:  Gamall kunningi gengur brosandi á móti þér með útrétta hönd, en þú hefur gleymt nafni hans í andartakinu.  En áður en hann kemst í talfæri við þig, þá kíkir þú snöggt á snjallsíma þinn og sérð nafn hans ásamt dagsetningu og útdrætti á síðustu samskiptum ykkar.

Sjáið þið myndina?  Ekkert nema gott, fyrir utan eitt orð sem fólk ætti nú að fara að sjá í gegn um, orðið “öryggi”.  Það ættu allir að fara að tengja við niðurlægingu í öryggisleit flugvalla, nektarskima, eftirlitsmyndavélar, allt þetta gagnlaust fyrir almenning, en þrúgandi og þrælleiðinlegt.

Ég get varla ímyndað mér að fólk noti þetta kerfi eins og það er sett fram.  Þunglamalegt gleraugnadrasl með hvíslandi spöng sem stingst inn í eyrað og bombar notandann með auglýsingum sem minna á galarana í LoveStar.  Nei, sem betur fer er þetta arfaslöpp viðskiptahugmynd.

En þetta er bara til að vekja áhuga fólks á hugmyndinni, á möguleikanum á tengslum tölvunetsins við okkur hvar sem er, hvenær sem er. 

Slík tenging er í pípunum, hún felst í tölvuflögu sem skotið er inn fyrir skinnið og tengist taugakerfi okkar, beint eftirlit á okkur og jafnvel innslög frá stjórnvöldum, áhrif á það hvað við viljum gera, hvað við viljum kjósa (ef það leikrit lifir af), allt lífið undir eftirliti, og verra, undir algerri stjórn.

Forsíðumynd: TOURIST
© Radu Razvan | Dreamstime.com
Enhanced Vision Creates 'Sixth Sense'
Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments

Tags: