Sjaldan fær sofandi maður sigur
Með því að brejast þá fást sigrar. Þegar fólk rís upp og andæfir, þá breytist stefnan eilítið brot í hvert sinn, þar til við fáum betri veröld.
Alex Jóns talar oft um það hvernig andstaða er sigur í sjálfu sér. Hvernig til dæmis framboð Ron Paul sem hingað til hafa ekki leitt til kosningar hafa hinsvegar vakið ungu kynslóðina og þar enduróma hugmyndir frambjóðandans um frelsi einstaklinga (ekki einkavina) og taum á ríki og seðlabanka. Öll getum við gert eitthvað, og öll getum við átt okkar litlu sigra. Þegar mannhafið verður meðvitað og virkt, þá þarf ekki nema fáein prósent af okkur til að breyta Íslandi og breyta heiminum.
Lyklar:Alex Jones








