
Páll Jósef Watson, Infowars.com, 19.maí 2011
Það er ekki nóg fyrir stóra bróður að vita hvar þú ert, hann vill líka vita hvað þú ert að hugsa. Stjórnvöld hafa valið næstbesta kostinn, þar sem ekki er enn hægt að græða flöguna í fólk, og kosið að nýta sér nýja tækni sem þróuð var fyrir flugherinn til að “fylgjast með grunsamlegri hegðun” og kallast “hegðunarmynstur.”
Kerfið byggir á myndavél og hugbúnaði sem fylgist með hreyfingum í andliti með sömu tækni og notuð er til að auðkenna fólk út frá kyrrmyndum eða römmum úr eftirlitsmyndakerfi, en sú tækni kallast ‘lífkenni’ (biometrics), og við þekkjum frá uppgangsárum nazistanna, þegar “vísindamenn” mældu bil milli augna, ennishæð og fleira til að kortleggja hvernig æðra fólk er frábrugðið undirmálsfólkinu, útlitslega.
“Photon-X hf frá Huntsville, Alabama hreppti nýlega samning við Flugherinn um að þróa slíkt tæki,” segir í fréttum Wired. Félagið staðhæfir að út frá einum ramma geti kerfið byggt þrívíddarlíkan af andliti manns, hornstein “lífkennis” sem hægt er að nota til að rekja slóð mannsins út um allar jarðir með neti eftirlitsmyndavéla. Ef nokkrir rammar til viðbótar eru tiltækir, þá getur tækið kortlagt andlitshreyfingar mannsins, en hver og einn hefur sinn sérstaka sið með þær, og þá er komið það sem þeir kalla “hegðunarmynstur” (bebaviormetric profile), sem er enn betri auðkenning en lífkennið.
Þessi nýja tækni er næsta skref upp á við frá illræmdum göngugreini DARPA, en hann átti að geta fundið hryðjuverkamenn út frá því hvernig þeir höguðu göngulagi sínu. Það kerfi var hakkað í ræmur af fjölmiðlum og varð að dæmi um hversu nojan getur orðið klikkuð.
Í frekar skuggalegu myndskeiði á vefsíðu Phton-X má sjá hvernig kerfið vinnur þegar viðfang breytir svipbrigðum sínum frá brosi yfir í grettu og svo í illsku.
“Vöðvahreyfingar viðfangsins eru settar inn í samræmt andlitsvöðvalíkan, og hreyfing hvers vöðva mæld. Með greiningu á hegðunarmynstrinu er hægt að mæla einfaldar breytur sem lýsa línulegri hreyfingu allra vöðva í andlitinu í rauntíma og svo má brúa þessi gögn yfir í sálfræðilegt greiningarkerfi,” staðhæfir vefsíðan.
Í einföldu máli segir þessi texti að hreyfingar vöðva í andliti þínu geti klagað í stóra bróður með aðstoð “greiningu hegðunarmynsturs” ef þú ert “grunsamlegur einstaklingur” sem gætir verið að hugsa glæpsamlegar hugsanir (thought crime), eða Guð forði okkur frá því, skipuleggja opinber mótmæli.
“Breytingar á líkamsburði, göngulagi og örlíkamstjáningu,” eru einnig mældar með tækinu svo “stjórnendur geti fylgst með fólki úr felum,” segir í samningnum.
Það verður svo notað til að fylgjast með “starfsemi uppreisnarmanna,” sem hljómar eins og eitthvað sem nota eigi af hernum í Írak eða Afganistan, en raunar er tæknin einnig á leiðinni til “lögreglu, banka og einkafyrirtækja, skóla og háskóla, spilavíta, skemmtigarða, verslana og verslunarmiðstöðva,” sem sé, uppreisnarmaðurinn gæti hæglega verið þú í vondu skapi í Smáralind.
Kerfið er einnig hannað til stuðnings við stýrikerfi vélmenna, þannig að grunsamlegt athæfi gæti valdið því að róbó-lögga eða skúringavél fari að krefja þig svara um ferðir þínar og erindi.
Þetta er orwellskara en nokkuð sem Georg Orwell gat dreymt um þegar hann skrifaði bók sína 1984. Lögregluríki þeirrar bókar er eins og skemmtiferð miðað við þá sjálfvirku fangelsismatröð sem þessi tækni býður upp á.
(Í frumgreininni eru svo fjölmargir tenglar í ítarefni)

Comments
Powered by Facebook Comments