Síðu WikiLeaks á Facebook eytt

Vefsíðu WikiLeaks á Facebook hefur verið eytt, tístir Wikileaks á Twitter.  Síðan átti 30.000 fylgjendur þegar henni var eytt, að því virðist, vegna þess að hún ”hvatti til ólöglegs athæfis”.

Það má svo sem alveg færa rök fyrir því að það sé satt.  Þegar glæpaöflin setja lögin, þá verða lögin oft furðuleg.  Til dæmis gæti það talist ólöglegt athæfi að lesa skjöl sem lekið hefur verið til Wikileaks, jafnvel þó þau skjöl afhjúpi spillingu og trúnaðarbrest stjórnmálamanna við drottnara sína, og þá á ég við kjósendur, ekki auðhringina.

Svona tilviljanir og óheppni hrjáir gjarna þá sem berjast á móti spillingaröflum og hnattvæðingarsinnum.  Ég er viss um að allskyns óhróður má finna á stuðningssíðum fyrir Obama og Bush, stórir sem smáir sem láta stór orð falla og hvetja í raun til ólöglegs athæfis.  En þær síður eru eins og brynvarðar.  Kannski eru þessar athugasemdir eða færslur fjarlægðar, en síðurnar standa styrkar og enginn snertir þær.

Síðasta tíst WikiLeaks segir þó að hin CIA fjármagnaða Facebook muni setja síðuna aftur upp, málið hafi verið “misskilingur” og einhver sem þóttist vera WikiLeaks “bað um að síðunni yrði eytt”.

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments