Siðfræði: Í lagi að hala niður ef þú kaupir

Randy Cohen, höfundur dálksins Siðfræðingurinn í New York Times dagblaðinu var beðin um skoðun á því hvort það væri í lagi að niðurhala rafrænu sjóræningjaafriti af bók eftir að þú hefur keypt pappírsútgáfuna.  Hann segir það siðferðilega réttmætt, jafnvel þó það sé ólöglegt:

“Ólöglegt niðurhal er — svo notast sé við ófágað orðafar — ólöglegt.  En í þessu tilfelli, þá er það ekki ósiðlegt.  Höfundur og útgefandi eiga rétt á greiðslu fyrir vinnu sína og með því að kaupa pappírsbókina, þá hefur þú greitt þeim.  Að þú halir rafrænni útgáfu niður í framhaldinu er álíka og að kaupa geisladisk og afrita hann svo yfir á iPoddinn þinn.

Kaup á bók eða tónlist ætti að líta á sem leyfi til að njóta efnisins á hvaða formi sem er.  Því miður hamla fornfáleg viðhorf bóksölu og höfundarlaga nýtingu tækninnar.  Þannig að þú hefur brotið á lagalegum réttindum útgefenda til að stjórna dreifingu hugverksins, en þú hefur ekki valdið neinum skaða, eða svo litlum að þessi verknaður finnst mér vera í lagi.”

NYT ethicist: OK to pirate ebooks once you’ve bought the hardcover

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments