Taugavísindamenn MIT hafa sýnt fram á að hægt er að hafa áhrif á siðferðisvitund fólks með því að trufla starfsemi ákveðinna svæða heilans. Þessi uppgötvun hjálpar til að skilja hvernig heilinn skapar siðferðisvitund.
Til að dæma siferði annars fólks, þá þurfum við oft að álykta um ásetning þess, hæfni sem við köllum að setja sig í spor annara (theory of mind). Til að mynda, ef veiðimaður skýtur félaga sinn í veiðiferð, þá þurfum við að vita hvað hann var að hugsa; Bar hann dulda afbrýðisemi til félaga síns, eða slysaðist til að skjóta vegna þess að hann hélt að þar færi önd í sefinu?
Fyrri rannsóknir hafa sýnt að svæði í heilanum sem er á neðri hluta hvirfilblaðs, á mótum hnakka og gagnaugablaðs í hægri hluta heilans, er afar virkt þegar við íhugum ásetning annarra, hugsanir eða skoðanir. Í þessari nýju könnun trufluðu vísindamenn starfsemi þessa svæðis með því að skapa straum á svæðinu með segulsviði á yfirborði höfuðsins. Þeir komust að því að hæfni viðfangsins til að dæma siðferði athafna þar sem setja þurfti sig í spor annarra , til dæmis siðferði misheppnaðrar morðárásar, var alvarlega skert.
Rannsakendur, undir forystu Rebeccu Saxe, aðstoðarprófessors við MIT í heila og skilvitslegum vísindum, birtu niðurstöður sínar í Proceedings of the National Academy of Sciences í enda mars.
Rannsóknin færir sönnur á því að þetta svæði, bak við og fyrir ofan hægra eyrað, hefur úrslitaáhrif á siðferðilegan skilning okkar, segir Liane Yong, einn af aðalhöfundum greinarinnar. Það er einnig sláandi, því undir venjulegum kringumstæðum á fólk mjög auðvelt með að dæma siðferði þessara atriða, segir Young, sem leggur stund á frekara nám á eftir doktorsprófi í samstarfi við MIT skólann.
“Okkur finnst siðferði vera mjög þróuð virkni heilabúsins,” segir hún. “Að hægt sé að nota segulsvið við einangraðann hluta heilans til að breyta siðferðisskynjun fólks er virkilega furðulegt.”
Framkvæmd rannsóknarinnar
Vísindmennirnir þurftu ekki að rjúfa höfuðkúpu viðfanganna, heldur notuðu segulerti fyrir heilarannsóknir til að erta ákveðna staði heilans með segulsviði. Segulsvið sem varpað er á lítil svæði á höfuðkúpu skapar veikan rafstraum sem dregur úr hæfni nálægra fruma til að koma boðum frá sér, en áhrifin eru bara tímabundin.
Í einni tilraun voru sjálfboðaliðar settir í segulörvun í 25 mínútur áður en þeir svo tóku próf þar sem þeir lásu um ýmsar aðstæður og atburðarásir og voru látin dæma siðferði þeirra með einkun sem var frá 1 (alveg bannað) til 7 (alveg í lagi).
Í annari tilraun var segulörvun beitt í 500 millisekúnda skvettum á því andartaki sem viðföngin voru beðin um siðferðilegan dóm. til að mynda, viðfang var spurt hversu rétt það væri ef einhver léti kærustu sína ganga yfir brú sem hann vissi að væri ótrygg, jafnvel þó hún kæmist yfir ósködduð. Í því tilfelli myndi dómur sem tekur aðeins tillit til afleiðinga sýkna gerandann af siðferðilegri sekt, jafnvel þó hann hafi viljað valda skaða.
Í báðum þessum tilraunum voru niðurstöðurnar þær að þegar þetta svæði heilans var truflað, þá voru viðföngin líklegri til að dæma misheppnaðar tilraunir til að valda skaða sem siðferðilega réttar. Það er því niðurstaða rannsóknaraðila að segulörvunin hafi haft áhrif á hæfni viðfanganna til að túlka ásetning annarra og valdið því að þau gátu aðeins stuðst við afleiðingar atburðarásarinnar til að byggja siðferðilegan dóm sinn á.
Moral judgments can be altered
Forsíðumynd © Shae Cardenas | Dreamstime.com

Comments
Powered by Facebook Comments