Smiley face
World Economic Forum on Europe 2010

Sema Esb Erla vill nauðga Íslandi

Höfundur bjorn þann . Flokkur Pistlar

Ung ESB sambandssinnuð kona skrifar bloggfærslu í DV um ágæti Evrópusambandsins og hvers vegna íslenska þjóðin ætti að ganga þar inn.  Hún telur upp fjögur atriði, 40-50% lægra matarverð, lægri skólagjöld, lægri vexti og engir tollar.  Svo reynir hún að útskýra hvers vegna þetta sé svona.  En eru þetta raunveruleg dæmi og er Sema Erla að segja satt.

Nei, auðvitað ekki!  Sema fellur í sama fúla pittinn og allir aðrir predikarar síðustu 2000 árin.  Hún lýgur og bullar út í eitt.  Auðvitað veit hún að lífskjör Íslendinga batna ekkert við inngöngu.  Hún veit að allir tollar lækka ekki.  Hún veit að vextir lækka ekki og hún veit líka að skólagjöld gufa ekki upp nema síður sé.

En Sema er ekki að selja aðgang að himnaríki sem engin hefur séð og komið til.  Hún er að reyna að pranga útlenska loddara inn á þjóðina með loforðum um gull og græna skóga.  Loddara sem eru til og allir vita hvernig líta út.  Það þýðir ekkert fyrir Semu að ljúga að þjóðinni um ágæti Brussels því óskapnaðurinn blasir við í öllum fréttatímum upp á síðkastið.  Allt í steik!

Staðreynd málsins er eftirfarandi.  Matarverð hækkar um 40-50%, skólagjöld hækka, vextir hækka og tollar hækka.  Allt sem Sema lofar er lygi og þvæla.  En ólíkt loforði um himnavist og í hverju sú sæla felst þá er hægt að heimsækja ESB og Brussel og kynna sér ástandið áður en maður drepst.  Hvers vegna getur Sema ekki bara haldið sig við Hamas og aðra Ísraelshatara.  Er það ekki bara fullt starf fyrir unga dömu með lygaáróður á heilanum?

 

 

Lyklar:,

bjorn

Er launamaður og áhugamaður um mat og fjallgöngur niður brekku.

Skrípó