Seinkun á brottför hersins

Líklegt er að friðarhöfðinginn í Hvíta húsinu seinki fyrsta stóra áfanganum í brotthvarfi herliðsins frá Írak um að minnsta kosti mánuð vegna aukins ofbeldis og pólitísks óróa í landinu.

Allt bandarískt bardagalið á að vera farið úr landinu fyrir enda ágústmánaðar, en ekki endilega heim, heldur til Afganistans, þar er enn þörf á blóðþyrstum friðarboðendum í stríði sem Obama lýsir sem “réttlátu”.

Nú eru um 92.000 bandarískir hermenn í Írak sem eyða tímanum að mestu innan rammgerðra langtímaherstöðva.  Þessi tala á að lækka niður í um 50.000 í enda águst, og þessir 50.000 eru þá ekki vígvallarlið, heldur skriffinnskulegri liðssöfnuður, kannski njósnarar, dauðaþjarkaflugmenn og þess háttar.

Iraq violence set to delay US troop withdrawal

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments