Frá fyrsta september næstkomandi mun jaðarfréttakóngurinn Alex Jóns hefja útsendingu á daglegum sjónvarpsfréttum frá áksriftarvef sínum, prisonplanet.tv.
Þátturinn mun heita Infowars Nightly News, og í gær sendi hann út 45 mínútna sérþátt, sem er gott sýnishorn af því sem koma skal. Þátturinn er allur hinn faglegasti og sendum við Kryppumenn félögum okkar í Bandaríkjunum bestu hamingjuóskir með þetta þrekvirki, því við vitum vel hversu mikil vinna er fólgin í alvöru nútíma fjölmiðlun.
Formið á þessum fréttaþætti er ekki alveg staðlað í vændisfréttastíl RÚV og félaga, þar sem mestu peningarnir eða “virtustu” áhrifamennirnir eiga alltaf síðasta orðið, heldur hikar Jóns ekki við að skýra fréttirnar jafnóðum, stíll sem lesendur Kryppunar eru vanir frá körlum eins og Gullvagninum og Birni.
Skoðið hér smá sýnishorn, kynning á þættinum og fyrsta frétt, sem fjallar um það hvernig Óbama ætlar að nota kolefnisskatta til að knésetja kolaorkuver og hífa raforkuverð upp í Bandaríkjunum, lævíst bragð þar sem þingið hefur dregið lappirnar við að banna þessi orkuverk, þá ætlar Obama bara að ganga af þeim dauðum með skattlagningu. Á sama tíma hefur báknfyrirtækið GE sérundanþágur frá skattlagningunni, eins og alltaf í vel spilltum stjórnkerfum (samanber álrisar og hugsanlega fleiri einkavinir undanþegnir skattheimtu hér á Íslandi).

Comments
Powered by Facebook Comments