Seðlabanki Evrópu segir spilaborgina titra

Jürgen Stark
Súpufasistinn greinir frá því að Jurgen Stark frá seðlabanka Evrópusambandsins hafi varað við að gjaldeyriskreppa í fyrsta heims löndum sé yfirvofandi og að allur (sá litli) hagnaður sem fyrirtæki birtu á síðasta ári sé tilkominn vegna aðgerðapakka stjórnvalda og sé ekki merki um traustari stöðu þessara fyrirtækja í framtíðinni.
Eins og venjulega er glæpalýðurinn í fjölmiðlastéttinni upptekinn við að sjúga spena stjórnvalda og hnetur fjármálahverfisins og mun því gera sitt besta til að sópa þessari aðvörun undir teppið.
Þið skulið ekki búast við að heyra um þetta frá þeim.
Ég ráðlegg ykkur að kaupa gull og silfurpeninga, gullklumpa og annan alvöru varning sem heldur verðgildi sínu, svo sem matvöru og hlutabréf í fangelsisiðnaðinum. Þegar óeirðirnar brjótast út, þá mun ég einnig fjárfesta í framleiðendum skotfæra, skotvopna og heykvíslagerða.
Lyklar:bankar








