
Arnold Schwarzenegger, ríkisstjóri Kaliforníu og fyrrum tortímandi hvíta tjaldsins mun stíga á stokk og ávarpa bræður sína í Frelsislundinum í kvöld.
Schwarzenegger mun tala frammi fyrir hundruðum stórmenna bandarísks þjóðlífs í 2.700 ekra skógarsvæði nærri Rússaá í Monte Rio.
Auðvaldsherrarnir munu án efa hlakka til að heyra í manninum sem þeir völdu sérstaklega til að verða ríkisstjóri Kaliforníu árið 2003, staðreynd sem San Francisco Chronicle skýrði frá á sínum tíma.
Fundurinn í Frelsislundinum, eða Bohemian Grove, er árlegur viðburður og þar er stefnumörkun Bilderberg fundarins kynnt fyrir bandarísku bræðrunum, þannig að allir geti nú gengið í takt.
Frelsisfundirnir eru nokkuð ærslafyllri en Bilderberg og fara sögur af miklu fjöri fundarmanna með hver örðum og hommaklámstjörnum sem leigðar eru til skemmtunar fyrir fundarmenn.
Einn fastur punktur í fundarhaldinu er athöfnin Bálför Umhyggjunnar, eða Cremation of Care, þar sem líkneski af barni, sem á að tákna umhyggju fundarmanna fyrir almenningi, er fært risastórri uglu, sem þeir kalla Morloch, að brennifórn.
Sjá nánari kynningu á þessum ærslafulla djöflagangi í myndskeiði að neðan.
http://www.prisonplanet.com/schwarzenegger-murdoch-give-keynote-speeches-at-the-bohemian-grove.html

party on!
Svá góðr
2