Saumar, slúður og sull

Daily Mail segir frá nýrri tískusveiflu hjá konum,  að koma á og ganga í saumaklúbba sem þær nefna “Stitch ‘n’ Bitch”.  Hugmyndin er einföld, konur hittast vikulega á barnum til að sauma, slúðra og reyna við erfið mynstur meðan lesið er í léttvínsflösku.

Á Íslandi er prjónalesið einnig á uppleið, margar konur á öllum aldri hafa tekið upp prjónana á ný og prjóna vettlinga, húfur, trefla, peysur og að sjálfsögðu hina þjóðlegu lopapeysu ásamt nútímalegri afbrigðum af henni.

Spámaðurinn Gerald Celente hefur puttann á púlsinum, þetta er það sem hann hafði að segja um framtíðina:

Á sama tíma og aðgengi fólks að peningum minnkar fæðist ein áhrifamesta stefna næstu ára.  Stefna sem Gerald kallar “Elegance”.  Hún byrjar í tískuheiminum og teygir sig víða eftir það.  Hér á Íslandi er hægt að benda á lopapeysuæðið sem part af þessu.  Fólk framleiðir föt og fallega hluti sem það selur hvort öðru á lægra verði en hlutir eftir fræga hönnuði kosta.

Sjá 2010: Hrun, hryðjuverk og fleira

Stitch ‘n’ Bitch eru alþjóðleg samtök, ef þið viljið hittast undir fána flottari frasa heldur en ‘saumó’, þá getið þið skráð ykkur og stofnað íslenska deild á vefsíðunni http://stitchnbitch.org/

Frétt Daily Mail

Mynd: © Scott Rothstein | Dreamstime.com

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments