Sálin seld fyrir 6 stafa tölu

Tony Blair hefur landað samningi um fyrirlestrarröð með 6 stafa summu.  Fyrirlestrana mun hann flytja fyrir vogunarsjóð sem mun hafa grætt milljónir með því að veðja á hrun bresku bankanna.

Úrtölumenn hafa sakað Blair um að “selja sálu sína” þegar fregnir af væntanlegum trúnaðarfyrirlestrum hans fyrir Lansdowne Partners komu upp á yfirborðið.

Sjóðurinn mun hafa grætt 100 milljónir punda á hruni Northern Rock og 12 milljónir á Barclays með því að sjorta hlutabréf bankanna, en að ‘sjorta’ þýðir í styttu máli að þeir veðjuðu á lækkun á gengi bréfanna.

Blair mun ræða heimspólitík við foringja sjóðsins í fjórum einkafyrirlestrum, en sett hefur verið út á “létt grip” stjórnar hans á fjármálamarkaðinum og það talið hafa auðveldað við úrbeiningu efnahagskerfisins.

Blair er einn af best launuðu ræðumönnum heimsins og bókanir eru þéttar hjá umbum hans hjá Washington Speakers Bureau.  90 mínútna fyrirlestur gengur á svona 150.000 pund.

Áætlað er að hann hafi þénað 15 milljónir í það minnsta síðan hann hrökklaðist frá völdum með því að græja hluti fyrir auðhringi (lobbýismi) og 4,5 milljónir punda fyrirframgreiðslu fyrir æviminningar sínar.

Lesið alla grein Herald Scotland hér:
Blair ‘selling his soul’ with six-figure speeches deal

Mynd: LittleMissSilly

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments