Sænski herinn vissi af hryðjuverkinu

Paul Joseph Watson, Infowars.com, 13.12.2010

Sænski herinn vissi um yfirvofandi hryðjuverk á annasamri verslunargötu í miðborg Stokkhólms á laugardag.

Það bendir til þess að árásin hafi verið látin hafa sinn gang óáreitt, til að blása lífi í kulnandi glæður stríðsins gegn hryðjuverkum.

Sænskur starfsmaður Försvarsmakten sendi skilaboð til kunningja um að halda sig frá svæði í miðborg Stokkhólms, mörgum klukkustundum áður en tvær spreningar urðu í því sem kallað er hryðjuverkaárás, segir í The Local, sænsku blaði sem skrifað er á ensku.

TT fréttastofan náði afriti af sms skilaboði sem sent var til starfsmanns hersins.  “Forðastu Drottninggatan í dag ef þú getur.  Margt getur gerst þar… bara svo þú vitir það,” segir í skeytinu.

Talsmaður hersins, Jónas Svensson sagði fyrst að hann hefði engar upplýsingar um skeytið, en myndi skoða málið.  Síðar viðurkenndu heimildamenn innan sænska hersins að skeytið væri ófalsað og sögðust vera að “undirbúa hvernig málið verði tæklað.”

Prófessor Wilhelm Agrell, sem vinnur við greiningu upplýsinga (njósna), segir sænsk stjórnvöld geta hafa vitað af hryðjuverkinu áður en það var framkvæmt, en talsmaður hersins, Eirík Lagersten, neitaði að herinn hefði haft slíkar upplýsingar.

Árásin minnir mjög á svipaða tilraun hins svokallaða “Timestorg sprengimanns” Faisal Shahzad, sem var á mála hjá Jaish-e-Muhammed samtökunum, sem eru leppur CIA.  Shahzad var leiðbeint af Anwar Al-Awlaki sem nefndur er CIA rakkinn, og er ábyrgur fyrir skipulagningu Jóladagssprengjufjörsins (nærbuxnabombersins) og Forth Hood skotárásarinnar, og er einnig sálusorgari hinna meintu flugræningja frá 11. september.

Eins og fram kemur í umfjöllun Prisonplanet, þá er Al-Awlaki einn helsti foringi blóraböggla CIA, og var í fínu matarboði hjá Pentagoninu nokkrum mánuðum eftir árásirnar 11. september 2001.

Lesið upprunalegu grein Watson og nálgist tengla á ýtarefni hér:
http://www.infowars.com/swedish-military-had-prior-knowledge-of-suicide-blast/

http://www.thelocal.se/30794/20101212/

Mynd CC arvidr
Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments