Fátt er svo með öllu illt að ei boð gott og á þetta alveg sérstaklega við Libíu. En þar á bæ hangir einn skemmtilegasti einræðisherra sögunar í völd sín þrátt fyrir hávært væl fjölþjóðaliðsins. Samkvæmt fréttum RÚV vilja Norðurlöndin senda herlið og sprengjuþotur til að hjálpa Gadafí að drepa börn og gamalmenni. Danska þingið eins og það leggur sig vill drepa fólk í Líbíu í kappi við einvaldinn litskrúðuga. Einhver vinstri flokkur er þó víst pínu pons á móti þessu en hefur fengið skriflegar trygginar meðal annars um að ekki verði gripið til árása ef Gadafí lofar að vera stilltur.
Norðmenn vilja líka taka þátt í smá fjöldamorðum í Líbíu en stríðsmálaráðherra Noregs er ekki búinn að ákveða hvernig. Rúsínan í pylsuendanum er síðan mikill áhugi sænska hersins á fjöldamorðum í Líbíu. Þar á bæ eru tilbúnar átta friðarþotur til að fylgja flugbanni Sameinuðuþjóðanna eftir. Þeir sem ekki voru alveg vissir hvernig Norðurlöndin ætluðu að hjálpa Japan hafa nú fengið svarið sitt. Sprengja aldraða og smábörn í Líbíu. Ekkert er víst betra fyrir hjálparstarfið í Japan en drepa fólk í Líbíu.
Menn fá ekki norsk/sænskan friðarNóbel fyrir ekki neitt:)
http://www.ruv.is/frett/danir-i-strid

Comments
Powered by Facebook Comments