S A M S Æ R I !

Samsæri er orð sem Gullvagninn forðast í skrifum sínum, vegna þess hve gildishlaðið það er orðið.  En þetta er einfaldlega orð yfir eitthvað sem getur átt sér stað.

Ég hjó eftir þessu í fréttalestri RÚV nú rétt áðan um baktjaldafléttu og “kickback” mútur til fíns aðalsmanns af arabakyni.  Þar segir að “sérstakur saksóknari rannsakar viðskiptin sem hluta af samsæri um stórfellda markaðsmisnotkun.”

Ólafur Ólafsson, sem virðist illa viðriðinn málið, samanber eftirskrift af samtali milli starfsmanna Kaupþings, sem lesa má í nýlegu DV, hann reynir að nota samsærisorðið í því samhengi sem það er yfirleitt notað af duglausum fjölmiðlum, það er að segja, til að vísa öllu á bug:

“Ólafur Ólafsson í Samskipum segir að samsæriskenningar um að Al-Thani sjeik frá Katar hafi ætlað að taka þátt í sjónarspili gegn þóknun við kaup á hlut hans í Kaupþingi í hitteðfyrra, séu vægast sagt fráleitar.”

Er þá sérstakur saksóknari að rannsaka samsæriskenningu?  Já, ef til vill er það svo.  En staðreyndin er sú að menn særa sig saman um ósiðleg og ólögleg myrkraverk.  Það er vitfyrring að loka augunum fyrir því, þó Hollywood hafi búið til myndir þar sem þeir sem sjá samsæri eru gerðir hlægilegir, og duglausir og leiðitamir fjölmiðlar svo gengið á eftir með að vísa hinu og þessu á bug með þessu orðalagi.

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments

Tags: