Sætismyndavélar í öllum flugvélum í boði ESB

Í þessari frétt RT NEWS er sagt frá nýjum hugmyndum yfirvalda í ESB að setja upp hlerunarbúnað í flugvélum. Þann 27. júní síðasliðinn birtist svipuð frétt í Telegraph.co.uk þar sem kafað er aðeins dýpra í málið/klósettið. En samkvæmt henni vilja yfirvöld setja upp myndavélar, hljóðnema og lyktarbúnað á klósettum. Allir sem haga sér undarlega geta síðan átt viðbrögð yfirvalda á hættu.

Tíðar klósettferðir með tilheyrandi vondri lykt gætu gefið flugstjóranum hættumerki um yfirvofandi hryðjuverk. Ef viðkomandi hryðjuverkamaður asnast til að horfa líka á True Lies á ferðaspilaranum sínum þarf hann alveg pottþétt ekki ekki að hafa áhyggjur af vinnunni þegar hann kemur heim úr fríinu. Það verður nefnilega langt og sólríkt á ónefndum stað í boði bandarískra stjórnvalda.

Ef áætlanir stjórnvalda ganga eftir mun næsta sumarfrí þitt líta svona út: Þú mætir 6 tímum fyrr út á völl til að bíða í langri röð eftir að verða myndaður nakin og allir kallar typpamældir. Að því loknu færðu inngöngu í flugstöðina og getur pínt í þig ógeðslegum skyndibita á verði sem Hótel Holt dytti ekki í hug að rukka. Ef þú lifir matinn af þarftu örugglega að skjótast nokkrum sinnum á klósettið.

Ef þér verður síðan hleypt um borð þrátt fyrir tíðar klósettferðir og í kjölfarið sjálfvirkan hryðjuverkastimpil. Verður falinni myndavél beint að þér allan tímann og allt sem þú segir eða prumpar tekið upp. Með þessu vonast stjórnvöld til að koma í veg fyrir fleiri misheppnaða nærbuxnabombera

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments