
Dónald Rumsfeld er eitt af þúsund ljósunum sem skína svo skært í myrkvi sögunnar.
Sagan segir ekki frá friðsama fólkinu, sem elskar börnin sín, sér fjölskyldunni farborða með heiðarlegum hætti, á vini og er allsstaðar vel liðið og vinamargt.
Nei, sagan segir frá mönnunum sem eru blóðugir upp á axlir, þeim sem taka algerlega óhugsandi ákvarðanir, þeim sem geta sofið þó þeir hafi fyrirskipað pyndingar og morð á þúsundum, eða hernaðaraðgerðir á heimsvísu.
Hún segir frá þeim sem vefa þjóðir sínar í lygavef skulda, lætur þær axla kostnað af óarðbærum virkjunum eða öðrum innviðum sem gagnast þjóðunum ekki, heldur alþjóðlegum auðhringjum. Hún segir frá þeim sem einkavæða bankakerfi og láta þau með glæpsamlegum hætti vaxa allt of hratt og án eftirlits og hrynja svo og færa þjóðinni óhamingju og skömm.
Þessir menn eru ljósin sem skína svo skært í myrkrinu, þúsund ljóspunktar í svartnættinu. Svartnætti þolinmæði, kærleika, umburðarlyndis. Þeir eru litlu ljósin hans Lúsifers.
Donald Rumsfeld hefur nýlega gefið út æviminningar sínar og fæst því sem gestur í allskyns útvarps og sjónvarpsþætti til að kynna bókina.
Hér er hann gestur í The Opie and Anthony Show, en grínarinn Louis CK var fyrir tilviljun í hljóðveri þegar tími Rumsfelds rann upp.
Louis vill fá að vita hvort Rumsfeld sé eðlumaður. Ósköp eðlileg spurning, enda ef hann væri ómennskur, þá myndi það auðvelda skilning á þessu fólki sem getur gengið fram og tekið ákvarðanir sem hafa hryllileg áhrif á líf milljóna, en finna ekki fyrir þyngd þeirrar ábyrgðar.
Hann vildi líka vita hvort hann hefði borðað mannahold, kannski mexíkönsk börn.
En Rumsfeld víkur sér undan með pólitísku blaðri, hann svarar ekki spurningunni, hann reynir að skýla sér bak við barnabörn sín og fleira í þeim dúr, en Louis heldur áfram að grilla, kannski espast hann upp við að Rumsfeld skuli ekki bara svara hreint út.
Hann á svo fleiri lúmsk skot, til dæmis spyr hann hvernig var að hitta Saddam Hussein, sem svo var hengdur í illa upplýstu herbergi og er þar með að gefa í skyn að kannski hafi hann bara alls ekki verið hengdur.
Þetta er skemmtilegt viðtal, grínarinn er af allt öðru sauðahúsi en spaugstofan eða baggalútur, en grín þeirra virðist mér vera gert til að slípa reiðina, sem gæti knúið fram breytingar, í burtu frá fólki. Þessi hinsvegar notar háðið á hárfínann hátt til að lauma að Rumsfeld spurningum sem enginn myndi þora að spyrja.
Hversu marga menn hefur þú hitt sem hafa verið hengdir?
Öryggið er lykilatriði og þá öryggi Bandaríkjamanna. Myndir þú gjöreyða til dæmis Frakklandi til að verja öryggi Texas og Arizona?
Hefur þú sjálfur skotið einhvern?
Svo verður fólk brjálað, ritskoðar spjallsíður og fordæmir kynþáttasinna, en kaupir svo ævisögu Rumsfelds eða Árna Matt í jólagjöf handa ástvinum sínum.

Comments
Powered by Facebook Comments