Eruð þið hrædd við geislavirkt úrfelli, sýklavopn, hryðjuverk, anarkisma, EMP púlsa, sólgos, pólskipti, halastjörnur, flóðbylgjur, plánetuna X eða ofureldgos?
Þá væri ekki úr vegi að taka verðtryggt lán, sem hverfur auðvitað í hörmungunum, og kaupa sér pláss í einu af dómsdagsbyrgjum VIVOS. Plássin kosta 50.000 dollara fyrir fullorðinn, en 25.000 fyrir börn. Þú mátt taka gæludýr með þér án aukakostnaðar.
Byrgin eru hönnuð til að hýsa allt að 900 manns í eitt ár og í þeim er matur, vínkjallari og heilsugæsla auk aðstöðu til að halda íbúum föngnum, ef þess gerist þörf.

Á þessari mynd sést dagstofa íbúanna, en út frá henni ganga svo íbúðareiningar. Þar er þröngt setinn bekkurinn, raðir af kjoum sem taka 16 manns, tvö æfingatæki, tvö klósett með sturtu, sófar og lesstólar.
Eftirspurn eftir plássum mun hafa aukist um 1.000% eftir jarðskjálftann og kjarnorkuslysið í Fukushima, Japan.
Það er auðvitað þægilegt að geta bara keypt sig inn í pakkadíl eins og þennan, en ég held að það þyrfti fljótlega að setja mig í fangageymsluna, svona miðað við hversu þröngt þessi bekkur á að vera setinn.
Hinn kosturinn fyrir þá áhyggjufullu er að grafa byrgi í heimahögum og byrgja sig upp af vistum á eigin vegum. Björn hefur þegar byrjað undirbúning og má lesa um það í pistli hans: Þegar klósettpappírinn klárast
Heimasíða VIVOS, þar sem hægt er að skoða fínar myndir og meira að segja kynningarvideó:
http://www.terravivos.com/
Umfjöllun DailyMail:
http://www.dailymail.co.uk/news/article-1372289/Japan-earthquake-tsunami-Sales-doomsday-nuclear-bunkers-soars-1000.html

Comments
Powered by Facebook Comments