Er ríkiskassinn pyttur heljar?

DV greinir frá því að Séra Magnús Erlingsson, skóknarprestur í Ísafjarðarprestakalli, hvetur fólk til að vera áfram í þjóðkirkjunni, fremur en að nauðaskattur þess renni í botnlausa hít ríkiskassans.

Presturinn hvetur fólk til þess að skrifa eða hringja í presta og biskpua til að fá útrás fyrir óánægju með siðleysi og spillingu í kirkjunni. 

Hann bendir á að fólk geti ekki sloppið við þennan nauðaskatt þó það skrái sig úr kirkjunni.

„En í stað þess að sá aur renni til trúfélags í heimabyggðinni þá rennur hann í ríkiskassann hans Steingríms, sem mun víst vera því sem næst botnlaus hít að fróðra manna sögn,” segir Séra Magnús.

Botnlaus hít minnir mikið á ensku þýðingu opinberunarbókarinnar, þar sem talað er um “bottomless pit” sem helvíti.

And he opened the bottomless pit; and there arose a smoke out of the pit, as the smoke of a great furnace; and the sun and the air were darkened by reason of the smoke of the pit.

Og hún lauk upp brunni undirdjúpsins, og reyk lagði upp af brunninum eins og reyk frá stórum ofni. Og sólin myrkvaðist og loftið af reyknum úr brunninum.

Séra Magnús hefur sannfært mig.  Ég segi mig ekki úr þjóðkirkjunni, því af tvennu slæmu, þá vil ég frekar að nauðaskattur minn fari til kirkjunnar heldur en að fjármagna botnlausa Icesave hít Steingríms og félaga.

http://www.dv.is/frettir/2010/8/31/verid-afram-i-kirkjunni-vegna-peninganna/

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments