Rannsókn á blóði sýnir mengun frá efnaslóðum

Alex Thomas, The Intel Hub, 16. maí 2011
Íbúar í Mohvae sýslu eru argir yfir augljósri úðun efna í loftið yfir þeim (og okkur öllum) og hafa brugðist við með því að kanna mettun eiturefna í blóði sínu. Niðurstöðurnar eru sláandi!
Margir hafa skrásett og sýnt fram á tilraunir til að breyta lífríkinu (geoengineering) á stórum skala á himninum yfir Bandaríkjunum og raunar um alla veröld.
Á síðasta ári hefur verið mikil vakning um málefnið og milljónir manns heimta að stjórnvöld um allan heim stöðvi þessa úðun.
Heimildarmynd Mike Murphys, What in the World Are They Spraying hefur upplýst milljónir manna sem annars voru alveg úti að aka í þessum málum.
The Intel Hub birti grein seint í febrúar á þessu ári þar sem tengslin milli efnaslóða og hinnar meintu þarfar á að breyta loftslaginu eru reifuð. Loftslagssinnar vilja úða ögnum út í andrúmsloftið á risavöxnum skala til að berjast gegn meintri hnattrænni hlýnun.
Nú hafa íbúar í Mohave sýslu látið mæla magn baríum og áls í blóði sínu, en ál og baríum eru þekkt innihaldsefni efnaslóða. Niðurstaða þeirra mælinga ættu að vera köld vatnsskvetta framan í fólk sem enn dormar.
“Aðeins þremur mánuðum eftir að Gialuca Zanna frá Golden Valley hvatti fólk til að láta rannsaka blóð sitt, þá hafa meira en tólf mælst með eitrunargildi af barium og áli,” skrifaði Bridget Lewison.
Af 17 sem létu rannsaka blóð sitt hafa 13 mælst með háa mettun eiturefna, flestir 1.000% yfir eðlilegum mörkum.
Eðlileg mettun telst milli 2 og 10 mcg/L, samkvæmt Labcorp og Quest Lab rannsóknastöðvunum.
- 1 Alan Golden Valley Barium 150
- 2 Bridget L. Golden Valley Barium 190
- 3 Luca Zanna Golden Valley Barium 130
- 4 Patty Kingman Barium 160
- 5 Patty’s sister in Texas Barium 140
- 6 Nancy Golden Valley Barium 250!!!!
- 7 Mike B. Kingman No Barium but Aluminum 21 (max is 7)
- 8 Kenny Golden Valley Barium 190
- 9 Janna Golden Valley Barium 150
- 10 Bridget C. Phoenix Barium 140
- 11 Mike C. Phoenix Barium 130 Aluminum 11 (max is 7)
- 12 Bridget L. Bullhead City No Barium but Uranium Extremely elevated
- 13 Ilenia Golden Valley Barium 70
- 14 Chuck Golden Valley no Barium but elevated Aluminum levels
- 15 Connie Golden Valley No barium
- 16 Maggie Kingman No Barium
- 17 Jim Golden Valley No barium
“Enginn þessara einstaklinga er í áhættuhópi vegna vinnu við iðnað og flestir dvelja mikið úti undir beru lofti,” sagði Zanna, sem ásamt konu sinni og öðrum íbúum á svæðinu hafa mælst með eitraða mettun af baríum fyrr á árinu.
Þrír úr hópnum mældust með eitraða mettun af áli. Á sama tíma og Monsanto undirbýr nýtt erfðabreytt útsæði sem þolir vel álmengun (einkaleyfi númer 7582809), þá mun fólkið í heiminum, sem er ekki erfðabreytt til að þola álmengun, halda áfram að verða veikt.
Zanna hefur sent niðurstöður prófanna til embættismanna í Arizona og bíður viðbragða frá þeim.
Niðurstöður prófana ríma beint við niðurstöður hundraða annara prófa á regnvatni sem þegar hafa verið gerð og eru skjöluð á GeoEngineeringWatch.org.
Almenningur í Bandaríkjunum og heiminum öllum verður að krefjast þess að stjórnvöld okkar hætti þessari eiturúðun áður en skaðinn verður varanlegur og óbætanlegur.
Myndir með greininni eru teknar á Íslandi (Borgarnesi) af Agný
Tenglar:
Viðurkenna veðurfarsbreytingar
Toxic Levels Of Barium And Aluminum Found In Several Mohave County Arizona Residents
What in the World Are They Spraying heimildarmynd á Youtube
Secret Presidential Chemtrail Budget Uncovered, Congress Exceeds Billions To Spray Populace Like Roaches









