Ein algengasta rangfærslan um ESB er sú að bandalagið sé samstarfsvettvangur fullvalda þjóða. Þessari rangfærslu er haldið fram af öllum sem vilja koma íslensku þjóðinni inn í bandalagið. Í nýlegri grein eftir Benedikt Jóhannesson listar hann tólf ástæður fyrir inngöngu. Í fjórða lið á lista sínum segir Benedikt að Evrópusambandið sé hagsmunasamband ríkja og tekur Danmörk sem dæmi. Þar sé ESB fánin t.d. vart sjáanlegur og síðustu 40 árin hafi Danir haldið hnarreistir fullveldi sínu.
Í annari grein eftir Jón Steindór sem birtist í Fréttablaðinu 24. febrúar kemur þessi nákvæmlega sama rangfærsla fram. En Jón segir : “Þar getum við gengið stolt til leiks og lagt okkar af mörkum til sameiginlegra verkefna og stefnumótunar á vettvangi fullvalda þjóða.” Dæmin eru óteljandi en hvað segja innvígðir ráðamenn í Brussel.
Alain Lamassoure, sem er einn af mönnunum bak við tjöldin í Brussel og tók þátt í ritun Lissbon sáttmálans, segir í nýlegri grein að sambandið eigi ekki að vera vettvangur mismunandi skoðana eða þjóða heldur eitt sameiginlegt afl með einum ríkisborgararétti. En gefum Alain orðið:
“Evrópa er meira en bara markaður, hún er fósturmold okkar. Tíu milljónir ESB þegna hafa flutt í önnur lönd sambandsins. Og á hverju ári eignast foreldrar af ólíku þjóðerni saman hundruð þúsunda barna. Til að Dönsk kona geti gifst Portúgölskum manni á Írlandi og síðan eignast börn í Belgíu áður en hún flytir til Austurríkis og byrjar að vinna. Skilið við manninn sinn í Svíþjóð, sest í helgan stein í Grikklandi og arfleitt pólsku barnabörnin sín af jarðneskum eigum sínum þarf að laga fjölmörg atriði.
Þetta kallar á að öll Evrópa verði eitt pólitískt svæði. Við höfum þegar brotið niður allar girðingar á milli okkar nema þær sem skilja að pólitíska umræðu. Hvert land fyrir sig er í stöðugri naflaskoðun með landsmálapólitík á heilanum. (Ó, hve heillandi er kosningabaráttan í París, London, Berlin eða Madrid!), meðan Brussel hagar sér eins og 28. landið alveg eins upptekið af sjálfu sér og hin 27. Tökum höndum saman og rífum niður þessar ósýnilegu girðingar! Tengjum þjóðþing okkar saman og nýtum rétt þegnana til að krefjast aðgerða af hálfu Forseta sambandsins.”
Alain heldur áfram og vill að Evrópusambandið með sinni einu röddu leiði allan heiminn í átt að miðstýringu til að stuðla að friði og velsæld og vonar síðan að ESB taki yfir öll öryggismál núverandi þjóða sambandsins. Frá mínum bæjardyrum séð heitir þetta minna sjálfstæði og meiri miðstýring. Alveg sama hversu oft er hamrað á þessari rangfærslu þá verður hún röng áfram. Því ættu Benedikt og félagar að sjá sóma sinn í að viðurkenna rangfærslu sínar og hætta þessum fornleifauppgreftri og tala um hvernig ESB ætlar að verða á morgun. Því það er það ESB sem Ísland er að sækja um aðild að!

Comments
Powered by Facebook Comments